5. janúar - Lægsta hitastigið á Norðurlöndum í 25 ár mældist í norður-Svíþjóð þegar hitinn fór niður fyrir -44 C°.
9. janúar - Gabriel Attal var útnefndur forsætisráðherra Frakklands. Hann tók við af Élisabeth Borne sem sagði af sér. Attal varð yngsti forsætisráðherra í sögu landsins og fyrsti samkynhneigði maðurinn til að gegna embættinu.
8. febrúar: Eldgos hófst við Sundhnúk á svipuðum stað og í desember árið áður. Hraun fór yfir hitaveitulögn og urðu Suðurnes heitavatnslaus. Gosinu lauk eftir sólarhring.
3. mars: Stjórnvöld á Haítí lýstu yfir neyðarástandi eftir að gengi náð yfirráðum yfir svæðum í höfuðborginni. Þau kröfðust uppsagnar forsætisráðherrans Ariel Henry.
15.-17. mars: Forsetakosningar voru haldnar í Rússlandi. Vladimír Pútín hlaut 87% atkvæða í kosningunum sem voru taldar ólýðræðislegar af vestrænum leiðtogum.
26. mars: Gámaskip sem varð rafmagnslaust sigldi á Francis Scott Key-brúna í Baltimore í Bandaríkjunum með þeim afleiðingum að brúin hrundi og sex létust.
20. júlí - Ísraelsher gerði árás á Hodeida í Jemen sem andsvar við drónaárás Húta á Ísrael.
21. júlí - Joe Biden dró forsetaframboð sitt fyrir komandi kosningar til baka. Kamala Harris varð stuttu síðar frambjóðandi Demókrata í kosningunum.
22. júlí - Um 25.000 manns var gert að flýja bæinn Jasper og nágrenni í Alberta, Kanada, vegna skógarelda. Allt að þriðjungur húsa bæjarins eyðilagðist.
28. júlí - Nicolás Maduro var endurkjörinn forseti Venesúela. Stjórnarandsstaðan lýsti einnig yfir sigri og sagði að kosningasvindl hafði átt sér stað.
Ísrael varpaði sprengjum á úthverfi Beirút, Líbanon, í hefndarskyni fyrir árás sem gerð var á Gólanhæðir í Ísrael. Háttsettur leiðtogi Hizbollah-samtakanna, Fuad Shukr, lést í árásinni.
Yfir 350 létust í skriðum í Kerala, Indlandi, eftir úrhelli.
Úkraínuher réðst inn í Kúrskfylki í Rússlandi í hernaðaraðgerð.
Meira en 400 voru handtekin í óeirðum í Bretlandi sem beindust gegn innflytjendum og hælisleitendum. Þær voru í kjölfar morða á 3 ungum stúlkum í Southport sem táningspiltur, sonur innflytjanda, framdi.
23. ágúst: Íslamska ríkið lýsti yfir ábyrgð á árás í Solingen í Þýskalandi þegar árásarmaður, sýrlenskur flóttamaður, stakk þrjá til bana og særði fleiri á bæjarhátíð.
4. október - Úrhellisrigning olli miklum flóðum og aurskriðum í Bosníu og Hersegóvínu , skammt frá Sarajevó. Að minnsta kosti 18 manns létu lífið.
9. október - 10. október: Milljónir flýðu Flórída vegna fellibylsins Milton. Hann olli talsverði eyðileggingu, a.m.k. 10 létust og urðu 2 milljónir rafmagnslausar.
17. október - Minnihluta-starfsstjórn Sjálfstæðisflokks og Framsóknar tók við völdum fram að alþingiskosningum í lok nóvember. Vinstri græn tóku ekki þátt í henni.