Sigurður Ingi lauk stúdentsprófi frá Menntaskólanum að Laugarvatni árið 1982 og tók embættispróf í dýralækningum frá Konunglega dýralækna- og landbúnaðarháskólanum í Kaupmannahöfn. Hann fékk almennt dýralæknaleyfi í Danmörku árið 1989 og á Íslandi árið1990.
Sigurður Ingi var varaformaður Framsóknarflokksins frá 2013 til 2016. Sigurður Ingi var landbúnaðar- og sjávarútvegsráðherra 2013-2016, umhverfisráðherra 2013-2014 og gegnd embætti forsætisráðherra frá apríl 2016, er hann tók við embættinu við afsögn Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar eftir Wintris-málið svonefnda, eftir birtingu Panama-skjalanna fram yfir alþingiskosningar 2016 og baðst lausnar fyrir sig og ráðuneyti sitt 30. október 2016 en gengdi embættinu til 11. janúar 2017.
Sigurður Ingi var kjörinn formaður Framsóknarflokksins 2. október2016 með 52,6% atkvæða í baráttunni um embættið við Sigmund Davíð.