Dag Hjalmar Agne Carl Hammarskjöld (29. júlí1905 – 18. september1961) var sænskur erindreki, hagfræðingur og rithöfundur sem gegndi stöðu annars aðalritaraSameinuðu þjóðanna frá apríl 1953 til dauða síns í flugslysi í september 1961. Hammarskjöld var 47 ára þegar hann var útnefndur og því sá yngsti sem hafði gegnt stöðu aðalritara. Auk þess er hann einn af aðeins fjórum sem hafa hlotið Nóbelsverðlaun eftir dauða sinn[1] og eini aðalritari Sameinuðu þjóðanna sem hefur látist í embætti. Hann lést þegar Douglas DC-6-flugvél hans brotlenti á leið í friðarumræður í Kongódeilunni. Hammarskjöld er jafnan nefndur sem annar tveggja bestu aðalritara Sameinuðu þjóðanna ásamt Kofi Annan[2] og útnefning hans í embættið hefur þótt eitt mesta happ stofnunarinnar.[3]John F. KennedyBandaríkjaforseti kallaði Hammarskjöld „mesta stjórnskörung okkar aldar.“[4]
Deilt hefur verið um hvort dauði Hammarskjölds hafi í raun verið slys. Í skýrslu sem skilað var til allsherjarþings Sameinuðu þjóðanna árið 2017 var ályktað að Hammarskjöld hafi verið myrtur.[5]