Heimildir skortir fyrir staðhæfingum í þessari grein. Ef þú vilt bæta við heimild vinsamlegast bættu þeim við undir nýrri fyrirsögn („Heimildir“) eða skildu eftir athugasemd á spjallsíðunni.
Borgin liggur á norðurodda San Francisco-skagans, sem myndar San Francisco-flóa. Borgarmörkin afmarkast í norðri af Golden Gate-brúnni, í vestri af Kyrrahafinu, í austri af San Francisco-flóanum og í suðri af hinum 300m háu Twin-Peaks-hólum, sem spænskir trúboðar nefndu vegna útlits síns Los Pechos de la Chola eða Brjóst Indíánastelpunnar.
San Francisco er einnig þekkt fyrir samtals 42 hæðir sínar, sem eru allt að 30m háar. Þær eru gjarnan mjög brattar og eru ástæða þess að sporvagnakerfi var tekið í notkun í borginni árið 1873.
Borgin er ein mikilvægasta hafnarborg vesturstrandar Bandaríkjanna, aðallega vegna mjög góðra náttúrulegra hafnaraðstæðna.
Sökum nálægðar borgarinnar við San Andreas misgengið eru jarðskjálftar tíðir. Sá stærsti kom 18. apríl1906 og var 7,8 á Richter. Honum fylgdu miklir brunar og eyðilagðist stærsti hluti San Francisco.
Árið 1989 kom Loma-Prieta jarðskjálftinn, sem er síðasti stóri skjálftinn á svæðinu. Hann var 7,1 á Richter og fylgdu honum miklar skemmdir á mannvirkjum, sérstaklega á samgöngumannvirkjum.
Hverfaskipting
Í borginni hafa innflytjendur myndað sérstök hverfi eftir uppruna sínum, sérstaklega Kínverjar og Japanir. Kínahverfi San Francisco er ein stærsta byggð Kínverja utan Kína. Þá eru önnur hverfi oft kennd við einhverja hópa íbúa þeirra eða staðalímyndir og eru þeirra helst:
Richmond er hverfi þar sem fjölmargir asískir innflytjendur búa.
Loftslag
Lega borgarinnar við Kyrrahafið hefur talsverð áhrif á loftstlagið, sem líkist annars mjög miðjarðarhafsloftslagi. Veðrið er milt allt árið um kring með svölum, nær úrkomulausum sumrum og hlýjum vetrum. Dagshitinn að sumarlagi er yfirleitt milli 15 og 25 gráður á celsius, en yfir veturinn frystir sjaldan. Sumarhitinn er þónokkuð lægri en annars staðar í Kaliforníu. Hlýjasti mánuðurinn er september og mesta úrkoman er milli nóvembers og mars. San Francisco er þekkt fyrir þoku sem kemur á morgnanna inn frá hafinu.
Á 16. öld sendu Spánverjar tvo leiðangra í norður eftir vesturströnd Ameríku. Hernan Cortés uppgötvaði Kaliforníu-skaga og kannaði Juan Rodriguez Cabrillo hann 10 árum seinna. Þótt margir aðrir landkönnuðir hafi á 16. öld farið um Kaliforníu (t.d. Sir Francis Drake) fannst San Francisco flói ekki fyrr en árið 1775, líklega vegna tíðrar þoku sem umlykur flóann.
1776 hófst landnám Evrópumanna á því landsvæði þar sem borgin stendur nú. Spænskir hermenn og trúboðar stofnuðu kirkjuna Mission Dolores29. júní það ár við lón sem þeir nefndu Nuestra Senora de los Dolores, þar sem nú er Presidio (virki) við Golden Gate. Trúboðanir nefndu borgina till heiðurs heilögum Frans af Assisi og hét borgin þá San Francisco de Asís, sem síðar varð Saint Francis og enn seinn aftur San Francisco.
Frá 19. öld til okkar tíma
Eftir stríð Bandaríkjanna við Mexíkó varð borgin bandarísk árið 1848. Gullaldartímabil borgarinnar hófst án efa með gullæðinu í Kaliforníu 1848 og dregur Golden Gate nafn sitt af þessu tímabili. Íbúatalan óx frá um 900 upp í yfir 20.000 á örfáum árum. Mörgum lá svo á að komast í land að þeir skildu báta sína í höfninni sem fylltist fljótlega. Fljótt fór að bera á skorti á landrými og brugðu men þá á það ráð að gera landfyllingar út í höfnina, og stendur hluti miðbæjarins enn þann dag í dag á þessari landfyllingu.
Að morgni 18. apríl1906 skók jarðskjálfti borgina. Jarðskjálftinn og bruninn sem fylgdi í kjölfarið eyðilögðu borgina að stærstum hluta. Talið er að um 700 hafi látist en sumir telja töluna þrisvar eða fjórum sinnum hærri. Bygging trúboðanna skemmdist ekkert og er hún því elsta bygging svæðisins í dag.
Árið 1939 var heimssýningin haldin á Treasure Island undir yfirskriftinni Golden Gate International Exposition. Eyjan er landfylling og var sérstaklega búin til við hlið Yerba Buena-eyju fyrir heimssýninguna.
Á sjöunda áratugi 20. aldar varð borgin að miðdepli bandarísku 68-hreyfingarinnar. Hippar fögnuðu sumarið 1967, Summer of Love, í borginni. Hljómsveitir á borð við Grateful Dead, Jefferson Airplane, og Janis Joplin höfðu mikil áhrif á rokktónlist um allan heim. Lag með Scott McKenziesSan Francisco (Be Sure to Wear Some Flowers In Your Hair) varð að einkennislagi borgarinnar og komst á topp vinsældarlista um allan heim.
Á áttunda áratugnum byrjuðu samkynhneigðir að flytja í borgina í stórum stíl, sérstaklega í Castro hverfið. Borgin hefur verið kölluð helsta borg samkynhneigðra í Bandaríkjunum og hafa samkynhneigðir á síðustu árum haft mikil áhrif á borgarpólitíkina.
Í lok 20. aldar varð borgin og nærliggjandi Silicon Valley að brennidepli tölvuvæðingar og internetbyltingar og fluttust mörg hugbúnaðarfyrirtæki, athafnamenn og markaðsfræðingar til San Francisco og höfðu mikil áhrif í viðskiptalífi borgarinnar. Mörg verkamannahverfi breyttust í hátískuhverfi og fasteignaverð rauk upp á þessum tíma.
Lýðfræði
San Francisco er ein þéttbyggðasta borg Bandaríkjanna. Hvítir eru 50% íbúa, 31% asískir, 14% af rómönskum uppruna og 8% af afrískum uppruna. Öfugt við flest önnur samfélög búa fleiri menn en konur í San Francisco og er hlutfallið 103,1 á móti 100.
Menning, daglegt líf og kennileiti
San Francisco er enn í fremstu röð þegar kemur að bandarískri samtímamenningu.
Kennileiti
Frægasta kennileiti borgarinnar er án efa Golden Gate-brúin sem áður segir. Einnig er Transamerica Pyramid skrifstofubyggingin þekkt merki.
Elsta byggingin er Mission Dolores og var reist 1776 af Spánverjum.
Fjöldi almenningsgarða er í borginni, m.a. Golden Gate Park, 'Yerba Buena Park, og Buena Vista Park, en sá síðastnefndi er elsti garðurinn eða frá 1867.
Söfn
Alcatraz, áður fangelsi, er nú orðið safn sem varðveitir sögu eyjarinnar sem vita, virkis og fangelsis.
San Francisco hefur fjölda háskóla og eru þeirra frægastir:
University of San Francisco var fyrsti háskólinn á vesturströnd Bandaríkjanna. Í dag er hann sérstaklega þekktur fyrir lagadeild sína, sem hefur getið sér mjög góðan orðstír.
University of California (UCSF) er einnig í San Francisco og er leiðandi á sviði heilbrigðisvísinda
Þá eru tveir þekktir háskólar í nágrenni San Francisco: