Skinfaxi og Hrímfaxi í norrænni goðafræði eru hestar Dags og Nætur sem ríða umhverfis jörðina. Skinfaxi lýsir upp daginn, Hrímfaxi veldur morgundögginni.
Þá tók Alföður Nótt og Dag, son hennar, og gaf þeim tvo hesta og tvær kerrur og setti þau upp á himin, að þau skulu ríða á hverjum tveim dægrum umhverfis jörðina. Ríður Nótt fyrri þeim hesti er kallaður er Hrímfaxi, og að morgni hverjum döggvir hann jörðina með méldropum sínum. Sá hestur er Dagur á heitir Skinfaxi og lýsir allt loft og jörðina af faxi hans.