Merki félagsins er fuglinn súla en félagið hefur einnig haft textann 2 A í færeyskum fánalitum sem merki félagsins.
Félagið var stofnað til þess að manna færeyska flugþjónustu. Félagið hefur 165 starfsmenn yfir árið, fimm flugvélar og þrjár þyrlur. Félagið er stærsti vinnustaðurinn í Vogum og telst meðal stærstu fyrirtækja Færeyja.
Saga
Reglulegar flugferðir til Færeyja hafa verið síðan 1963, frá eyjunum og til Danmerkur. Þrátt fyrir að flugvöllurinn á Vágum hefði verið byggður af breska hernum í seinni heimstyrjöldinni var flugumferð til eyjanna svo gott sem engin á frá brotthvarfi Bretanna og til upphafs flugþjónustu til Kastrup, Kaupmannahöfn. Á níunda áratugnum komu upp fyrstu hugmyndir um stofnun færeysks flugfélags. Farþegatölur voru stöðugt á uppleið og Maersk Air var eina flugfélagið sem flaug til eyjanna.
Fyrir vikið var Atlantic Airways stofnað árið 1987, upprunalega á milli færeyska ríkisins (51%) og Danska flugfélagsins Cimber Air (49%), þótt færeyska ríkið tæki yfir félagið árið 1989. Flug á milli Vogar og Kastrup hófst þann 28. mars1988 með flugvél British Areospace BAe 146. Flugskýli var byggt í Vágum af færeysku stjórninni til þess að tryggja að flugvöllurinn héldist sem miðstöð flugs félagsins og að viðgerðarþjónusta væri til staðar á eyjunum.
Tilgangur flugfélagsins var að byggja upp færeyska flugþjónustu í atvinnuskyni og tryggja að Færeyjar hefðu loftbrú við umheiminn. Áhöfn og stjórn félagsins var færeysk.
Þrátt fyrir að flugfélagið flytti marga farþega og að þjónusta félagsins væri vinsæl var efnahagur félagsins í upphafi mjög erfiður. Færeyjar lentu í kreppu í byrjun tíunda áratugarins og færeyska ríkið sem eigandi þess borgaði því 75 milljónir danskra króna til aðstoðar. Flugfélagið varð ekki arðsamt fyrr en árið 1995.
Með auknum fjölda áfangastaða og farþega, ásamt stöðuleika í fjármálum fyrirtækisins var annarri BAe 146 flugvél bætt við flotann árið 2000. Þessi nýja flugvél bætti við LondonStansted flugvelli í Bretlandi og Osló í Noregi við áfangastaði félagsins. Samfara auknum ferðalögum til eyjanna hafa áfangastaðirnir Álaborg, Stavanger, Stord og Edinborg bæst við. Flugfélagið bætti við þriðju flugvél félagsins þann 15. júní2004 og sama ár fékk flugfélagið verðalunin Ársins átak frá stéttarfélagi Færeyja fyrir flug til Stord. Hins vegar, fyrir árið 2006 hefur flugi til Stord verið hætt og í stað Edinborgar er flogið til Hjaltlandseyja. Félagið hóf innanlandsflug innan Bretlands árið 2006 og varð eina flugfélagið sem bauð beint flug á milli Hjaltlands og London, en flogið var tvisvar í viku. Innanlandsflugi í Bretlandi lauk árið 2008.
Félagið rekur einnig þyrluþjónustu innan færeyja, sem er í sumum tilfellum nauðsynleg tenging við margar eyjanna sem ekki er hægt að fara til á sjó. Þyrlan hefur verið mikilvæg á eyjunum síðan 1960 þegar að þyrlur frá Dönsku landhelgisgæslunni sem sáu um loftrýmisgæslu, meðal annars tóku að sér að ferja tæki og birgðir á milli eyjanna. Ríkistjórnin keypti þyrlu vegna þessa árið 1978 en árið 1980 var opinber þjónusta í atvinnuskyni sett á laggirnar, með tveimur Bell þyrlum.
Í upphafi var þyrluþjónustan sér fyrirtæki, SL Helicopters, en með ákvörðunnini að hafa flugþjónustu færeyja í einu fyrirtæki varð það hluti af Atlantic Airways árið 1994. Þyrlurnar fljúga í hring á milli eyjanna og farþegar geta farið úr á hvaða ey sem þeim lystir. Fyrirtækinu er skylt að hafa að lámarki eina þyrlu, í lagi og tilbúna til að taka þátt í björgunarstarfi.
Á árunum 2006-2011 hefur flugfélagið skilað hagnaði á milli 8 og 13 milljón danskra króna. Eignir félagsins hafa aukist frá 120 milljónum árið 1998 í 520 milljónir danskra króna árið 2006. Félagið var með 177 manns í vinnu í janúar 2007.
Flugfélagið hefur verið skráð í Íslensku kauphöllinni síðan 10. desember2007. Í kjölfarið ákvað færeyska ríkið að einkavæða fyrirtækið og seldi 33% af hlutafé sínu í félaginu. Árið 2008 var áætlað að selja 33% eignarhlut ríkisins en hætt var við þau áform vegna fjármagnskreppunar.[2][3][4]
Fyrsta Airbus A319 Atlantic Airways þotan, undir skráningarmerkinu OY-RCG, var tekin í notkun í mars 2012, með breyttum merkingum. Flugbrautin á Vágum var lengd til að hægt væri að nota þotuna.
Önnur og þriðja Airbus 310 þoturnar (OY-RCH and OY-RCI) voru teknar í notkun í maí og október 2013. Þegar að leigutímabili þeirra lauk 2016 var annar samningurinn endurnýjaður á meðan ný Airbus A320 þota var afhent.
3. júní 2015 varð Jóhanna á Bergi forstjóri fyrirtækisins.[5] Hún er fyrsti kvenkyns forstjóri norræns flugfélags.[6]
Í desember 2018 sótti flugfélagið um leyfi fyrir flugferðir til Bandaríkjanna.[7]
13. mars 2020 tilkynnti Atlantic Airways að allar leiðir til 13. apríl 2020 yrðu felldar niður, að undanskilinni leiðinni til Kaupmannahafnar, vegna COVID-19 faraldursins.[8]
Áfangastaðir
Frá mars 2024 flýgur Atlantic Airways til eftirfarandi áfangastaða:[9]
Atlantic Airways flýgur einnig fyrir Flugfélag Íslands á milli Reykjavíkur og Narsuaq á Grænlandi. Þessar ferðir eru farnar með Avro RJ85 flugvél eða BAe 146-200. Flugfélagið flýgur í leiguflugi fyrir danskar ferðaskrifstofur, meðal annars til Ítalíu, Króatíu, Frakklands, Skotlands, Noregs og Tékklands frá Kastrupflugvelli og Billund flugvelli.
Árið 1989 rann BAe 146-200A flugvél (einkennisnúmer OY-CRG) af flugbrautinni á Vogaflugvelli. Flugvélin var ónothæf í þrjár vikur.
Klukkan 7:35 að norskum staðartíma þann 10. október2006 rann BAe 146-200A flugvél (einkennisnúmer OY-CRG) af flugbrautinni á Stordflugvelli í Noregi. Af tólf farþegum og fjögurra manna áhöfn fórust fjórir og tólf særðust. Flugvélin var í leiguflugi Aker Kværner frá Stavanger til Molde, um Stord flugvöll.[13][14][15]