Mílanó eða Meilansborg (ítalska: Milano) er önnur stærsta borg Ítalíu, með um 1,4 milljón íbúa (2020) í hinu eiginlega sveitarfélagi en 4,2 milljónir á stórborgarsvæðinu. Hún er höfuðstaður samnefndrar sýslu og héraðsinsLangbarðalands. Hún er gjarnan kölluð efnahagsleg höfuðborg landsins og þar er kauphöll Ítalíu. Sagan segir að borgin hafi verið stofnuð af gallverskum ættflokki um 600 f.Kr.. Rómverjar nefndu hana Mediolanum eftir 200 f.Kr..