Björgólfur Thor Björgólfsson (f. 19. mars1967) er íslenskur kaupsýslumaður. Hann er þekktur erlendis sem Thor Björgólfsson. Björgólfur Thor var fyrsti Íslendingurinn sem komst á lista Forbes Magazine yfir 500 ríkustu einstaklinga heims. Í mars 2008 voru eignir hans metnar á 3,5 milljarða dollara, eða um 227 milljarða króna.[1]
Björgólfur Thor hefur mikið verið gagnrýndur í kjölfar bankahrunsins á Íslandi í október 2008, meðal annars fyrir að vera aðaleigandi Landsbankans í gegnum fjárfestingafélag sitt Samson ehf sem stóð fyrir hinum umdeildu Icesavereikningum. Landsbankinn var yfirtekinn af ríkinu í kjölfar bankahrunsins. Árið 2009 var Björgólfur metinn á um 1 milljarð dollara og er því enn ríkasti maður íslands.[2] Björgólfur hefur fallið um 400 sæti hjá Forbes listanum.
Ævi
Björgólfur er sonur Björgólfs Guðmundssonar, sem einnig var fyrirferðamikill í íslensku viðskiptalífi. Móðir Björgólfs er Þóra Hallgrímsson, dóttir Hallgríms Fr. Hallgrímssonar forstjóra Skeljungs og Margrétar Thors, sem var dóttir dansk-íslenska athafnamannsins Thors Jensen og heitir Björgólfur eftir honum. Hann er kvæntur Kristínu Ólafsdóttur og eiga þau þrjú börn. Heimili hans er í London.
Björgólfur og félagar færðu sig um set í lok tíunda áratugarins og keyptu rekstur Bravo bruggverksmiðjunnar. Fljótlega hófst þar framleiðsla á Botchkarov bjór sem sló í gegn í heimalandinu. Heineken keypti Bravo árið 2002, fyrir $400 milljónir.
Árið 2000 fjárfesti Björgólfur í gegnum Samson í félaginu Pharmaco[6] og árið 2002 keypti Samson einnig lyfjafyrirtækið Delta og sameinaði það Pharmaco undir nafninu Actavis.[7]
Einnig keypti Björgólfur Thor, í gegnum nokkra milliliði, stóran hlut í Eimskipafélagi Íslands árið 2003. Landsbankinn eignaðist líka fjárfestingabankann Burðarás og sameinaði hann fjárfestingafélaginu Straumi, undir nafninu Straumur-Burðarás.
Björgólfur Thor var einnig mjög virkur á fjarskiptamörkuðum, sérstaklega í Austur-Evrópu, og átti m.a. stóran hlut í símafyrirtækinu Novator í Búlgaríu. Fyrirtæki hans, Novator, Nova stundaði einnig fjarskiptaþjónustufyrirtæki á Íslandi.
Bankahrunið
Í kjölfar bankahrunsins var Landsbankinn ríkisvæddur og skömmu seinna varð eignarhaldsfélag Björgólfs, Samson gjaldþrota.[8] Félag hans Novator Pharma hefur einnig staðið í ströngu vegna láns frá Deutsche Bank sem hljóðar uppá 700 milljarða króna. Lánið var gert upp við söluna á Actavis til bandaríska lyfjafyrirtækisins Watson í apríl 2012.[9]
Í júlí óskuðu Björgólfsfeðgar eftir því að felldir yrðu niður 3 af 6 milljörðum af láni sem þeir höfðu fengið hjá Búnaðarbankanum til kaupa á Landsbankanum,[10] þeirri beiðni var hafnað. Stöð 2 flutti frétt um að 12 milljarðar króna voru fluttar úr félögunum Samson ehf og Straum-Burðarás inn á um eitt hundrað reikninga á skattaskjólseyjum m.a. Caymaneyja.[11] Björgólfur neitaði þessu og í maí 2010 dró Stöð 2 frétt sína til baka [12].
Í kjölfar bankahrunsins blossaði upp mikil reiði í garð auðmannsins, og hafa skemmdarverk verið unnin m.a. á húsnæði í hans eigu og Hummer-bifreið sem hann er skráður fyrir.[13]