Þingmannanefnd til að fjalla um skýrslu rannsóknarnefndar Alþingis
Þingmannanefnd til að fjalla um skýrslu rannsóknarnefndar Alþingis (stundum nefnd Sannleiksnefnd Alþingis) var níu manna þingnefnd alþingismanna sem brást við skýrslu rannsóknarnefndar Alþingis um bankahrunið. Nefndin starfaði í um fimm mánuði við að fara ofan í kjölinn á skýrslu rannsóknarnefndarinnar sem var gerð opinber 12. apríl2010 og ákveða viðbrögð við henni. Niðurstöður nefndarinnar voru gerðar opinberar 11. september2010 í formi skýrslu. Meðal helstu niðurstaðna voru þær að koma þyrfti á skýrari skiptingu ríkisvaldsins, sjálfstæði þingsins gagnvart framkvæmdarvaldinu þyrfti að efla, og getu þingsins til þess að sinna þingeftirliti sömuleiðis. Loks ættu þingmenn að setja sér siðareglur.[1]
Rannsóknarnefnd Alþingis komst að þeirri niðurstöðu í skýrslu sinni að þrír ráðherrar hefðu sýnt af sér vanrækslu í starfi með vítaverðu gáleysi: Árni M. Mathiesen, fjármálaráðherra (2005-2009), Geir Haarde, forsætisráðherra (2006-2009) og Björgvin G. Sigurðsson viðskiptaráðherra (2007-2009). Þingmannanefndin klofnaði hins vegar í afstöðu sinni til þess hvort samþykkja bæri þingsályktunartillögu um kæru á hendur ráðherra vegna brota í starfi. Þingmenn Samfylkingarinnar vildu að ofangreindir þrír ráðherrar yrðu ákærðir fyrir landsdóm. Þingmenn Vinstri grænna, Framsóknarflokksins og Hreyfingarinnar vildu því til viðbótar að Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, utanríkisráðherra (2007-2009), yrði ákærð. En þingmenn Sjálfstæðisflokksins töldu að ekki bæri að ákæra neinn ráðherra.[2]
Með atkvæðagreiðslu á Alþingi um tillögur nefndarinnar þann 28. september 2010 var samþykkt með 33 atkvæðum gegn 30 að höfðað skyldi mál fyrir Landsdómi á hendur Geir H. Haarde en tillögur um málshöfðun á hendur Ingubjörgu Sólrúnu Gísladóttur, Árna Mathiesen og Björgvini G. Sigurðssyni voru felldar.[3] Skipaður var sérstakur saksóknari Alþingis sem birti Geir formlega ákæru og málið Alþingi gegn Geir H. Haarde var rekið fyrir Landsdómi en því lauk með sakfellingu vegna eins ákæruliðar en sýknu eða frávísun annarra liða. Geir var ekki gerð sérstök refsing í málinu.
Samsetning
Samsetning Þingmannanefndar til að fjalla um skýrslu rannsóknarnefndar Alþingis[4]
Formaður nefndarinnar var Atli Gíslason og vakti athygli að flestir þingmannanna voru nýir á þingi. Nefndin endurspeglaði styrk stjórnmálaflokka á þingi. Þá var þar líka Birgitta Jónsdóttir úr flokki Hreyfingarinnar en hún gerði kröfu um varaformannssæti í nefndinni. Þingmennirnir voru kosnir án atkvæðagreiðslu á þingfundi þann 30. desember2009.[4]
Ásbjörn Óttarsson var í lok janúar 2010 hvattur til að segja sig úr nefndinni eftir að hafa viðurkennt að hafa brotið lög þegar hann greiddi sér og konu sinni tuttugu milljónir króna í arð árið 2007.[5] Hann sagði sig úr nefndinni í febrúar og í stað hans kom Ragnheiður Ríkharðsdóttir.[6]
Þingsályktun um ákærur á hendur fyrrverandi ráðherrum