17. ágúst - Osló brann til kaldra kola. Eftir brunann var borgin flutt um set og nefnd Kristjanía í höfuðið á Kristjáni 4. konungi. Hún hélt því nafni allt fram að þriðja áratug tuttugustu aldar, en þá fékk hún aftur nafnið Osló.
Gústaf 2. Adolf fékk tilboð um þátttöku í hernaðarbandalagi gegn Habsborgurum í Evrópu en þar sem hann gerði kröfu um að leiða bandalagið varð ekkert af þátttöku Svía í það skipti.
Sesselja Jónsdóttir dæmd til dauða á Alþingi, 29 ára, fyrir blóðskömm. Ekki er ljóst í annálum hvort eða hvenær dómnum var framfylgt.
Hildibrandur Ormsson frá Höfða, Dýrafirði, dæmdur til dauða á Alþingi, 44 ára, fyrir blóðskömm í sama máli. Hann var tekinn af lífi þar á þinginu.[1]
Tilvísanir
↑Upplýsingar um aftökur sóttar á vef rannsóknarverkefnisins Dysjar hinna dauðu, þá ekki síst skrá á slóðinni https://dhd.hi.is/gogn/Info.pdf, sótt 15.2.20202.