Klemens 9. (28. janúar 1600 – 9. desember 1669) var páfi frá 1667 til dauðadags. Hann hét upphaflega Giulio Rospigliosi og var af aðalsættum frá Pistoia í Toskana. Hann gekk í jesúítaskóla og lærði síðan heimspeki við Háskólann í Písa. Hann var náinn samstarfsmaður Úrbanusar 8. og var í hans valdatíð sendur sem postullegur sendiherra til Spánar og hélt þeirri stöðu eftir að Innósentíus 10. tók við. Hann samdi söngbækur fyrir óperur.
Lítið markvert gerðist í skammri valdatíð Klemensar 9.. Hann gegndi hlutverki sáttasemjara í friðarsamningunum eftir Valddreifingarstríðið 1668. Hann hélt áfram kaupum Páfastóls á listaverkum. Hann samdi við Gian Lorenzo Bernini um gerð englanna á Ponte Sant'Angelo í Róm og við Antonio Maria Abbatini um myndskreytingu kórsins í Sixtínsku kapellunni.
|
---|
|
1. – 4. öld | | |
---|
5. – 8. öld | |
---|
9. – 12. öld | |
---|
13. – 16. öld | |
---|
17. – 20. öld | |
---|
21. öld | |
---|