„Það sem enginn sér“ var framlag Íslands til Söngvakeppni evrópskra sjónvarpsstöðva 1989. Flytjandi var Daníel Ágúst Haraldsson. Lag og texti var eftir Valgeir Guðjónsson. Lagið var fyrsta íslenska lagið til að hljóta engin stig í keppninni.