„Draumur um Nínu“ (oftast kallað „Nína“) var framlag Íslands til Söngvakeppni evrópskra sjónvarpsstöðva 1991. Lagið var flutt af dúettinum Stefán & Eyfi, en hann skipuðu þeir Stefán Hilmarsson og Eyjólfur Kristjánsson en Eyjólfur samdi bæði lagið og textann. Lagið lenti í 15. sæti af 22 með 26 stig. Það var valið vinsælasta íslenska Eurovision-lag allra tíma í könnun sem tímaritið Monitor stóð fyrir árið 2010.