James Ramsay MacDonald (12. október 1866 – 9. nóvember 1937) var breskur stjórnmálamaður. Hann var fyrsti leiðtogi Breska verkamannaflokksins og fyrsti forsætisráðherra Bretlands úr þeim flokki. Hann varð alls þrisvar forsætisráðherra; í fyrstu ríkisstjórn verkamannaflokksins frá janúar til nóvember 1924, í annarri ríkisstjórn verkamannaflokksins frá 1929 til 1931 og í þjóðstjórninni 1931 til 1935. Hann sagði af sér 1931 vegna andstöðu ráðherra við gjaldfellingu breska pundsins (sem átti að vera liður í að bregðast við heimskreppunni) og myndaði þjóðstjórn með Breska íhaldsflokknum og Frjálslynda flokknum. Í kosningum sama ár beið verkamannaflokkurinn afhroð. Hans var því lengi minnst innan flokksins sem svikara sem leiddi andstæðingana til valda. Síðustu ár hans í embætti sagði aldurinn til sín og ræður hans urðu ruglingslegar. Winston Churchill og fleiri íhaldsmenn sökuðu hann um linkind gagnvart uppgangi Hitlers í Þýskalandi. Að lokum sagði hann af sér og íhaldsmaðurinn Stanley Baldwin tók við forsætisráðherraembætti í þjóðstjórninni en MacDonald varð forseti ríkisráðsins.
Tilvísanir
- ↑ Richard Beck (1. janúar 1932). „Ramsay MacDonald“. Almanak Ólafs S. Thorgeirssonar. Sótt 8. janúar 2019.