Íslensku bókmenntaverðlaunin

Íslensku bókmenntaverðlaunin
Veitt fyrirFramúrskarandi árangur í íslenskum bókmenntum
LandÍsland
UmsjónFélag íslenskra bókaútgefenda
Fyrst veitt1989
Vefsíðawww.fibut.is/index.php/bokmenntaverdhlaun

Íslensku bókmenntaverðlaunin eru verðlaun sem veitt eru þremur bókum ár hvert. Árið 2013 bættist þriðji flokkurinn við, flokkur íslenskra barnabóka. Áður höfðu verðlaunin verið veitt í tveim flokkum, flokki fagurbókmennta og í flokki fræðirita og rita almenns efnis. Verðlaunin voru sett á stofn af Félagi íslenskra bókaútgefenda í tilefni af hundrað ára afmæli félagsins árið 1989. Fimm bækur eru tilnefndar í hverjum flokki og eru tilnefningarnar kynntar í byrjun desember en verðlaunin sjálf eru ekki veitt fyrr en í janúar. Vegna þess að tilnefningarnar koma í miðju jólabókaflóðinu eru þær mikið notaðar við markaðssetningu þeirra bóka sem þær hljóta.

Val bóka sem tilnefndar eru fer þannig fram að Félag íslenskra bókaútgefenda skipar dómnefndir í hvorum flokki sem velja úr þeim bókum sem lagðar eru fram til tilnefningar af bókaútgefendum. Lokadómnefnd er skipuð af formönnum dómnefnda og einum sem forseti Íslands tilnefnir og er sá jafnframt formaður dómnefndar.

Handhafar bókmenntaverðlaunanna

Ár Höfundur/ar Verk Flokkur
1989 Stefán Hörður Grímsson Yfir heiðan morgun: ljóð '87-'89
1990 Fríða Á. Sigurðardóttir Meðan nóttin líður Fagurbókmenntir
Hörður Ágústsson Skálholt: kirkjur Fræðibækur og rit almenns efnis
1991 Guðbergur Bergsson Svanurinn Fagurbókmenntir
Guðjón Friðriksson Bærinn vaknar 1870-1940 Fræðibækur og rit almenns efnis
1992 Þorsteinn frá Hamri Sæfarinn sofandi Fagurbókmenntir
Vésteinn Ólason, Sverrir Tómasson og Guðrún Nordal Bókmenntasaga I Fræðibækur og rit almenns efnis
1993 Hannes Pétursson Eldhylur Fagurbókmenntir
Jón G. Friðjónsson Mergur málsins: íslensk orðatiltæki: uppruni, saga og notkun Fræðibækur og rit almenns efnis
1994 Vigdís Grímsdóttir Grandavegur 7 Fagurbókmenntir
Silja Aðalsteinsdóttir Skáldið sem sólin kyssti: ævisaga Guðmundar Böðvarssonar Fræðibækur og rit almenns efnis
1995 Steinunn Sigurðardóttir Hjartastaður Fagurbókmenntir
Þór Whitehead Milli vonar og ótta Fræðibækur og rit almenns efnis
1996 Böðvar Guðmundsson Lífsins tré Fagurbókmenntir
Þorsteinn Gylfason Að hugsa á íslensku Fræðibækur og rit almenns efnis
1997 Guðbergur Bergsson Faðir og móðir og dulmagn bernskunnar: skáldævisaga Fagurbókmenntir
Guðjón Friðriksson Einar Benediktsson Fræðibækur og rit almenns efnis
1998 Thor Vilhjálmsson Morgunþula í stráum Fagurbókmenntir
Hörður Ágústsson Íslensk byggingararfleifð I: ágrip af húsagerðarsögu 1750-1940 Fræðibækur og rit almenns efnis
1999 Andri Snær Magnason Sagan af bláa hnettinum Fagurbókmenntir
Páll Valsson Jónas Hallgrímsson Fræðibækur og rit almenns efnis
2000 Gyrðir Elíasson Gula húsið Fagurbókmenntir
Guðmundur Páll Ólafsson Hálendið í náttúru Íslands Fræðibækur og rit almenns efnis
2001 Hallgrímur Helgason Höfundur Íslands Fagurbókmenntir
Sigríður Dúna Kristmundsdóttir Björg Fræðibækur og rit almenns efnis
2002 Ingibjörg Haraldsdóttir Hvar sem ég verð Fagurbókmenntir
Páll Hersteinsson og Pétur M. Jónasson Þingvallavatn Fræðibækur og rit almenns efnis
2003 Ólafur Gunnarsson Öxin og jörðin Fagurbókmenntir
Guðjón Friðriksson Jón Sigurðsson, ævisaga II Fræðibækur og rit almenns efnis
2004 Auður Jónsdóttir Fólkið í kjallaranum Fagurbókmenntir
Halldór Guðmundsson Halldór Laxness Fræðibækur og rit almenns efnis
2005 Jón Kalman Stefánsson Sumarljós og svo kemur nóttin Fagurbókmenntir
Kristín B. Guðnadóttir, Gylfi Gíslason, Arthur Danto, Matthías Johannessen og Silja Aðalsteinsdóttir Kjarval Fræðibækur og rit almenns efnis
2006 Ólafur Jóhann Ólafsson Aldingarðurinn Fagurbókmenntir
Andri Snær Magnason Draumalandið - sjálfshjálparbók handa hræddri þjóð Fræðibækur og rit almenns efnis
2007 Sigurður Pálsson Minnisbók Fagurbókmenntir
Þorsteinn Þorsteinsson Ljóðhús. Þættir um skáldskap Sigfúsar Daðasonar Fræðibækur og rit almenns efnis
2008 Einar Kárason Ofsi Fagurbókmenntir
Þorvaldur Kristinsson Lárus Pálsson leikari Fræðibækur og rit almenns efnis
2009 Guðmundur Óskarsson Bankster Fagurbókmenntir
Helgi Björnsson Jöklar á Íslandi Fræðibækur og rit almenns efnis
2010 Gerður Kristný Blóðhófnir Fagurbókmenntir
Helgi Hallgrímsson Íslenskir sveppir og sveppafræði Fræðibækur og rit almenns efnis
2011 Guðrún Eva Mínervudóttir Allt með kossi vekur Fagurbókmenntir
Páll Björnsson Jón forseti allur? Táknmyndir þjóðhetju frá andláti til samtíðar Fræðibækur og rit almenns efnis
2012 Eiríkur Örn Norðdahl Illska Fagurbókmenntir
Gunnar F. Guðmundsson Pater Jón Sveinsson - Nonni Fræðibækur og rit almenns efnis
2013 Sigurjón Birgir Sigurðsson Mánasteinn - drengurinn sem aldrei var til Fagurbókmenntir
Guðbjörg Kristjánsdóttir Íslenska teiknibókin Fræðibækur og rit almenns efnis
Andri Snær Magnason Tímakistan Barna- og ungmennabækur
2014 Ófeigur Sigurðsson Öræfi Fagurbókmenntir
Snorri Baldursson Lífríki Íslands: vistkerfi lands og sjávar Fræðibækur og rit almenns efnis
Bryndís Björgvinsdóttir Hafnfirðingabrandarinn Barna- og ungmennabækur
2015 Einar Már Guðmundsson Hundadagar Fagurbókmenntir
Gunnar Þór Bjarnason Þegar siðmenningin fór fjandans til - Íslendingar og stríðið mikla 1914-1918 Fræðibækur og rit almenns efnis
Gunnar Helgason Mamma klikk! Barna- og ungmennabækur
2016 Auður Ava Ólafsdóttir Ör Fagurbókmenntir
Ragnar Axelsson Andlit norðursins Fræðibækur og rit almenns efnis
Hildur Knútsdóttir Vetrarhörkur Barna- og ungmennabækur
2017 Kristín Eiríksdóttir Elín, ýmislegt Fagurbókmenntir
Unnur Jökulsdóttir Undur Mývatns: um fugla, flugur, fiska og fólk Fræðibækur og rit almenns efnis
Áslaug Jónsdóttir, Rakel Hemsdal og Kalle Güettler Skrímsli í vanda Barna- og ungmennabækur
2018 Hörður Kristinsson, Þóra Ellen Þórhallsdóttir og Jón Baldur Hlíðberg Flóra Íslands - Blómplöntur og byrkingar Fræðibækur og rit almenns efnis
Sigrún Eldjárn Silfurlykillinn Barna- og ungmennabækur
Hallgrímur Helgason Sextíu kíló af sólskini Fagurbókmenntir
2019 Jón Viðar Jónsson Stjörnur og stórveldi á leiksviðum Reykjavíkur 1925-1965 Fræðibækur og rit almenns efnis
Bergrún Íris Sævarsdóttir Langelstur að eilífu Barna- og ungmennabækur
Sölvi Björn Sigurðsson Selta – Apókrýfa úr ævi landlæknis Fagurbókmenntir
2020 Elísabet Jökulsdóttir Aprílsólarkuldi Fræðibækur og rit almenns efnis
Arndís Þórarinsdóttir og Hulda Sigrún Bjarnadóttir Blokkin á heimsenda Barna- og ungmennabækur
Sumarliði R. Ísleifsson Í fjarska norðursins: Ísland og Grænland - viðhorfasaga í þúsund ár Skáldverk
2021 Sigrún Helgadóttir Mynd af manni I-II Fræðibækur og rit almenns efnis
Þórunn Rakel Gylfadóttir Akam, ég og Annika Barna- og ungmennabækur
Hallgrímur Helgason Sextíu kíló af kjaftshöggum Skáldverk
2022 Pedro Gunnlaugur Garcia Lungu Skáldverk
Arndís Þórarinsdóttir Kollhnís Barna- og ungmennabækur
Ragnar Stefánsson Hvenær kemur sá stóri? Að spá fyrir um jarðskjálfta Fræðibækur og rit almenns efnis
2023 Eva Björg Ægisdóttir Heim fyrir myrkur Íslensku glæpasagnaverðlaun Blóðdropans
Gunnar Helgason og Rán Flygenring Bannað að drepa Barna- og ungmennabækur
Haraldur Sigurðsson (skipulagsfræðingur) Samfélag eftir máli Fræðibækur og rit almenns efnis
Steinunn Sigurðardóttir Ból Skáldverk
2024 Íslensku glæpasagnaverðlaun Blóðdropans
Barna- og ungmennabækur
Fræðibækur og rit almenns efnis
Skáldverk

Tenglar