Bob Dylan (fæddur Robert Allan Zimmerman; 24. maí 1941) er bandarískur tónlistarmaður.
Robert Allen Zimmerman fæddist inn í fjölskyldu af gyðingaættum sem var búsett í Duluth, Minnesota. Hann breytti síðar nafni sínu í Bob Dylan. Dylan sagði frá því seinna að það hafi verið vegna áhrifa frá velska ljóðskáldinuDylan Thomas. Bob Dylan er söngvari, tónlistarmaður, lagahöfundur og skáld. Hann hefur haft mikil áhrif á tónlist seinustu 5 áratuga. Hann er þekktur fyrir texta sína á fyrri hluta feril síns, en þeir fjölluðu flestir um stjórnmál, þjóðfélagsádeilu, sálfræði og bækur sem hafa haft áhrif á hann. Dylan kemur fram á tónleikum með gítar, munnhörpu og hljómborð ásamt ýmsum tónlistarmönnum. Hann hefur unnið sér inn fjölda verðlauna og viðurkenninga, þar á meðal 10 Grammy-verðlaun og var tekinn inn í Rock and Roll frægðarhöllina (Hall of Fame) árið 1988. Hann var á lista Time Magazine yfir 100 mestu áhrifavalda 20. aldarinnar.[2]