Grammy Awards |
---|
|
Veitt fyrir | Framúrskarandi árangur í tónlistariðnaðinum |
---|
Land | Bandaríkin |
---|
Umsjón | The Recording Academy |
---|
Fyrst veitt | 4. maí 1959; fyrir 65 árum (1959-05-04) (sem Gramophone Award) |
---|
Vefsíða | grammy.com |
---|
|
Keðja |
- NBC (1959–1970)
- ABC (1971–1972)
- CBS (1973–núverandi)
|
---|
Grammy-verðlaunin (stílað sem GRAMMY, upphaflega Gramophone Award) eru bandarísk verðlaun frá The Recording Academy sem veitt eru framúrskarandi tónlistarmönnum. Verðlaunin eru samsvarandi Emmy-verðlaununum fyrir sjónvarpsefni og Óskarsverðlaununum fyrir kvikmyndir.
Verðlaunin eru ásamt Billboard Music-verðlaununum, American Music-verðlaununum og Rock and Roll Hall of Fame, fremstu tónlistarverðlaun Bandaríkjanna. Fyrsta Grammy-verðlaunahátíðin var haldin 4. maí 1959. Verðlaunin eru veitt fyrir tímabilið 1. október til 30. september.
Flokkar
Helstu verðlaunaflokkarnir (The General Field) eru fjórir í heildina og eru ekki tengdir neinum tónlistarstefnum:
- Breiðskífa ársins (Album of the Year)
- Smáskífa ársins (Record of the Year)
- Lag ársins (Song of the Year)
- Nýliði ársins (Best New Artist)
Íslenskir Grammy-verðlaunahafar
Eftirfarandi eru Íslendingar sem hafa hlotið Grammy-verðlaun eða verið hluti af verki sem gerði slíkt.
Tenglar