Skúli Gautason
Skúli Gautason (f. 25. október 1959 ) er íslenskur leikari , leikstjóri, tónlistarmaður og menningarstjóri.
Skúli fæddist í Reykjavík og ólst upp í Vesturbænum. Hann lauk stúdentsprófi frá Menntaskólanum í Reykjavík 1979, nam tölvustjórn og forritun hjá IBM í Reykjavík 1981.
Hann útskrifaðist úr Leiklistarskóla Íslands árið 1986 og réðist strax þá um haustið til starfa við Leikfélag Akureyrar.
Hann hefur leikstýrt fjölda leiksýninga hjá áhugaleikfélögum um land allt og tveim sýningum við Leikfélag Akureyrar. Skúli hefur starfað sem menningar- og viðburðastjóri, m.a. hjá Reykjavíkurborg og Akureyrarbæ.
Hann starfrækir menningarhús í hlöðunni sinni að Litla-Garði á Akureyri.
Skúli hefur samið tónlist við leiksýningar og kvikmyndir
Skúli stundaði söngnám hjá Guðmundi Jónssyni og Alinu Dubik og hefur sungið í Háskólakórnum, Fílharmóníu og Hymnodíu.
Hann tók þátt í því að stofna Bifhjólasamtök lýðveldisins, Snigla árið 1984 og stofnaði hljómsveitina Sniglabandið ári síðar. Með Sniglabandinu hefur hann m.a. leikið í vinsælum útvarpsþáttum á Rás 2.
Skúli nam menningarstjórnun við háskólann á Bifröst og lauk MA-gráðu 2014. Hann hefur starfað við menningarstjónun frá árinu 2007, var m.a. viðburðastjóri á Höfuðborgarstofu og stýrði þar helstu viðburðum Reykjavíkurborgar s.s. Menningarnótt, Vetrarhátíð og Hátíð hafsins 2007-11. Hann fluttist norður og tók við starfi menningarfulltrúa í Hörgársveit og stýrði bæjarhátíðinni Ein með öllu 2011. Hann stjórnaði Miðaldadögum á Gásum um nokkurra ára skeið. Skúli starfaði sem framkvæmdastjóri fasteignafélagsins Hjalteyrar ehf frá 2011-14, var framkvæmdastjóri Akureyrarstofu 2014-15. Hann starfaði sem sölu- og viðburðastjóri hjá Ambassador ehf 2016 og tók við starfi menningarfulltrúa Vestfjarða í nóvember 2016.
Skúli hefur annars komið víða við, stundað sjómennsku, byggingarvinnu, verslunarstörf, leiðsögn og þjónusta við ferðamenn, ljósahönnun, hljóðblöndun og margt fleira.
Tónlist í kvikmyndum og leiksýningum
Hlutverk á sviði
Ár
Leiksýning
Leikfélag
höfundur
leikstjóri
2012
Ef ég væri jólasveinn
Leikfélag Akureyrar
Leikhópurinn
Sigríður Eir
2012
Borgarinnan
Leikfélag Akureyrar
Saga Jónsdóttir
Saga Jónsdóttir
2006
Hvað ef...?
Regína
Gunnar Sigurðsson
Gunnar Sigurðsson
2004
Ólíver!
Leikfélag Akureyrar
Lionel Bart
Magnús Geir Þórðarson
2004
Svik
Á senunni
Harold Pinter
Edda Heiðrún Backmann
2004
Stólarnir
Leikfélag Akureyrar
Eugene Ionesco
María Reyndal
2003
Draumalandið
Leikfélag Akureyrar
Ingibjörg Hjartardóttir
Þráinn Karlsson
2003
Elling
Sögn
Ingvar Ambjørnsen
Benedikt Erlingsson
2003
Slavar!
Leikfélag Akureyrar
Tony Kushner
Halldór E. Laxness
2003
Uppistand um jafnréttismál
Leikfélag Akureyrar
Ingimar Oddsson o.fl.
2002
Hversdagslegt kraftaverk
Leikfélag Akureyrar
Évgeníj Schwartz
Vladimir Buchler
2002
Hamlet
Leikfélag Akureyrar
William Shakespeare
Sveinn Einarsson
2001
Blessað barnalán
Leikfélag Akureyrar
Kjartan Ragnarsson
Þráinn Karlsson
2001
Ball í Gúttó
Leikfélag Akureyrar
María Árdal
María Árdal
2000
Gleðigjafarnir
Leikfélag Akureyrar
Neil Simon
Saga Jónsdóttir
2000
Tveir misjafnlega vitlausir
Leikfélag Akureyrar
Aðalsteinn Bergdal
Þráinn Karlsson
2000
Ég sé
Draumasmiðjan
Margrét Pétursdóttir
Margrét Pétursdóttir
1999
Töfratívolí
Regína
Bernhard Goss
Gunnar Sigurðsson
1999
Einar Áskell
Möguleikhúsið
Gunilla Bergström, leikgerð Pétur Eggerz
Bjarni Ingvarsson
1998
Northern lights
Regína
Frederick Harrison
Gunnar Sigurðsson
1997
Draumsólir vekja mig
Íslenska leikhúsið
Gyrðir Elíasson/Þórarinn Eyfjörð
Þórarinn Eyfjörð
1997
Sporvagninn Girnd
Leikfélag Akureyrar
Tennessee Williams
Haukur Gunnarsson
1996
Nanna systir
Leikfélag Akureyrar
Einar Kárason og Kjartan Ragnarsson
Andrés Sigurvinsson
1996
Dýrin í Hálsaskógi
Leikfélag Akureyrar
Torbjörn Egner
Ingunn Jensdóttir
1995
Undir berum himni
Leikfélag Akureyrar
Steve Tesich
Eyvindur Erlendsson
1995
Drakúla
Leikfélag Akureyrar
Bram Stoker
Michael Scott
1993
Góðverkin kalla
Leikfélag Akureyrar
Þorgeir Tryggvason, Sævar Sigurgeirsson og Ármann Guðmundsson
Hlín Agnarsdóttir
1991
Tjútt og tregi
Leikfélag Akureyrar
Valgeir Skagfjörð
Valgeir Skagfjörð
1990
Sumardagur
Kaþarsis leiksmiðja
Sławomir Mrożek
Kári Halldór
1989
Litli prinsinn
Kaþarsis leiksmiðja
Antoine de Saint-Exupéry
Kári Halldór
1988
Fiðlarinn á þakinu
Leikfélag Akureyrar
Jerry Bock, Sheldon Harnick og Joseph Stein
Stefán Baldursson
1987
Piltur og stúlka
Leikfélag Akureyrar
Jón Thoroddsen og Emil Thoroddsen
Borgar Garðarsson
1987
Horft af brúnni
Leikfélag Akureyrar
Arthur Miller
Theodór Júlíusson
1987
Einar Áskell
Leikfélag Akureyrar
Gunilla Bergström, leikgerð
Soffía Jakobsdóttir
1987
Hvenær kemurðu aftur, Rauðhærði riddari?
Leikfélag Akureyrar
Mark Medoff
Stefán Baldursson
1987
Marblettir
Leikfélag Akureyrar
Bengt Ahlfors, Kristján frá Djúpalæk o.fl.
Pétur Einarsson
1986
Kabarett
Leikfélag Akureyrar
Christopher Isherwood, John Kander og Fred Ebb
Bríet Héðinsdóttir
1986
Herra Hú
Leikfélag Akureyrar
Hannu Mäkelä
Þórunn Sigurðardóttir
1986
Brennu-Njáls saga
útileikhús í Rauðhólum
leikgerð: Helgi Skúlason og Helga Bachman
Helgi Skúlason
1986
Tartuffe
Nemendaleikhúsið
Jean Baptiste Moliére
Radu Penciulescu
1986
Ó muna tíð
Nemendaleikhúsið
Þórarinn Eldjárn
Kári Halldór
1985
Hvenær kemurðu aftur, Rauðhærði riddari
Nemendaleikhúsið
Mark Medoff
Stefán Baldursson
Leikstjórnarverkefni
Ár
Leiksýning
höfundur
Leikfélag
2024
Öfugu megin uppí
Derek Benfield
Leikfélag Hólmavíkur
2023
Maður í mislitum sokkum
Arnmundur Backmann
Leikfélag Hólmavíkur
2020
Mamma Mia!
Catherine Johnson
LMÍ
2019
Saumastofan
Kjartan Ragnarsson
Leikfélag Hólmavíkur
2019
Nanna systir
Einar Kárason og Kjartan Ragnarsson
Leikfélag Hólmavíkur
2018
Halti Billi
Martin McDonagh
Leikfélag Hólmavíkur
2016
Saumastofan
Kjartan Ragnarsson
Freyvangsleikhúsið
2012
Tjaldið
Hallgrímur Helgason
Leikklúbburinn Saga
2007
Þið munið hann Jörund
Jónas Árnason
Leikfélag Hólmavíkur
2006
Fyrir luktum dyrum
Jean Paul Sartre
H.O.M.M.A.
2005
Ellý, alltaf góð
Þorvaldur Þorsteinsson
Ævar Þór
2004
Sweeney Todd
Christopher Bond
LMA
2004
Fjóla á ströndinni
Joan MacLeod
Leikfélagið Brynjólfur
2003
Sex í sveit
Marc Camoletti
Leikfélag Hólmavíkur
2003
Þrek og tár
Ólafur Haukur Símonarson
Leikfélag Borgarness
2002
Gullbrúðkaup
Jökull Jakobsson
Leikfélag Akureyrar
2002
Helena fagra
Offenbach
Leikhúskórinn
2001
Sígaunabaróninn
Johan Strauss
Leikhúskórinn
2000
Nornin Baba Yaga
Évgeníj Schwartz
Leikfélag Sauðárkróks
1999
Blessað barnalán
Kjartan Ragnarsson
Leikfélag Patreksfjarðar
1999
Svört kómedía
Peter Shaffer
LML
1999
Á bleiku skýi
Caryl Churchill
Leyndir draumar
1998
Emil í Kattholti
Astrid Lindgren
Leikfélag Vestmannaeyja
1997
Góðverkin kalla
Þorgeir Tryggvason, Sævar Sigurgeirsson og Ármann Guðmundsson
Leikfélag Patreksfjarðar
1997
Fenris IV
leikstjóri og leikhópurinn
norrænt samstarf
1996
Auga fyrir auga
William Mastrosimone
Leikfélag Húsavíkur
1996
Sumar á Sýrlandi
leikgerð leikstjóra
Freyvangsleikhúsið
1996
Á svið!
Rick Abbott
Búkolla
1995
Litli prinsinn Hamlet
barnaleikrit
Leikklúbburinn Saga
1995
Stútunga saga
Þorgeir Tryggvason, Sævar Sigurgeirsson og Ármann Guðmundsson
Leikfélag Patreksfjarðar
1994
Blómarósir
Ólafur Haukur Símonarson
Leikfélag Vestmannaeyja
1993
Tobacco Road
Erskine Caldwell
Leikfélag Hólmavíkur
1991
Karíus og Baktus
Torbjörn Egner
Flensborg
1990
Keiluspil
Sjón
Flensborg
1989
Betri er þjófur í húsi
Dario Fo
Fjölbrautask við Ármúla
1988
Hinn eini sanni Seppi
Tom Stoppard
Leikklúbburinn Saga
1987
Mýs og menn
John Steinbeck
Freyvangsleikhúsið
1986
Pæld'í'ðí
Helma Hehrmann, Jürgen Flügge og Holger Franke
Leikklúbburinn Saga
Ferill í kvikmyndum og sjónvarpsþáttum
Hljómplötur
Ár
Heiti
Útgefandi
2015
Íslenskar sálarrannsóknir
Sniglabandið
2010
25
Sniglabandið
2009
Jól meiri jól
Sniglabandið
2007
Beztu sætin
Sniglabandið
2007
Vestur
Sniglabandið
2006
RUV-tops
Sniglabandið
2000
The Soul of the Great Viking
High North
2000
Tveir misjafnlega vitlausir
LA
1999
Töfratívolí
Regína
1995
1985-1995
Sniglabandið
1994
Já, takk
safnplata
1993
Þetta stóra svarta
Sniglabandið
1991
RativfláhgosnieðitálikkeðivmuteG
Sniglabandið
1990
Rokk og jól
safnplata
1990
Himpi gimpi gella
Sniglabandið
1989
Til hvers þarf maður konur
Sniglabandið
1988
Jólastund
safnplata
1987
Áfram veginn með meindýr í maganum
Sniglabandið
1986
Fjöllin falla í hauga
Sniglabandið
1984
Hvíta albúmið
Lagavalsnefnd Bifhjólasamtaka lýðveldisins
Tengill