Forest Whitaker (fæddur Forest Steven Whitaker, 15. júlí 1961 ) er bandarískur leikari , leikstjóri og kvikmyndaframleiðandi sem er þekktastur fyrir hlutverk sín í The Last King of Scotland , Platoon , Bird , Good Morning, Vietnam , The Crying Game og Ghost Dog: The Way of the Samurai .
Einkalíf
Fjölskylda
Whitaker fæddist í Longview , Texas en ólst upp í Los Angeles . [ 1] Sem unglingur gekk Whitaker í Palisades-menntaskólann [ 1] þar sem hann æfði amerískan fótbolta .[ 2] Í menntaskóla tók hann söngtíma, kom fram í söngleikjum og tók upp leiklistina. Þar lék hann í sínu fyrsta hlutverki í Under Milk Wood .[ 1] Whitaker stundaði nám við California State Polytechnic háskólann (Cal Poly Pomona) í Pomona , Kaliforníu á íþróttastyrk en vegna bakmeiðsla, þá breytti hann aðalfaginu yfir í tónlist (söng). [ 3] Whitaker ferðaðist um England með "Cal Poly Chamber" kórnum árið 1980. Skipti hann stuttlega um fag við Cal Poly, yfir í drama. Whitaker komst inn í tónlistardeildina við Suður-Kaliforníuháskólann til þess að læra óperusöng, ásamt því að komast inn í dramadeildina við skólann.[ 2] Whitaker útskrifaðist árið 1982 og hafði hann fengið skólastyrk til að stunda nám við Drama Studio London sem staðsett er í Berkeley , Kaliforníu .[ 4]
Þann 16. apríl 2007, fékk Whitaker stjörnu á Walk of Fame göngugötuna og er staðsett á 6801 Hollywood Blvd.
Whitaker giftist leikkonunni Keisha Nash árið 1996, saman eiga þau fjögur börn: tvær dætur saman, son hans úr fyrra sambandi og dóttur hennar úr fyrra sambandi.
Augnsjúkdómur
Whitaker fæddist með augnsjúkdóminn ptosis í vinstra auganu, sem þýðir drúpandi augnlok . Hefur hann sagt að sjúkdómurinn sé arfgengur og að hann hafi hugsað um að láta laga augað með skurðaðgerð þar sem hann hefur áhrif á sjón hans.[ 5]
Góðgerðarmál
Whitaker er grænmetisæta.[ 6] Whitaker og dóttir hans True, töluðu inn á kynningarmyndband fyrir almenning til þess að kynna grænmetishyggju fyrir People for the Ethical Treatment of Animals (PETA). [ 7] Whitaker er stuðningsaðili og talsmaður góðgerðarsamtakanna Hope North , sem er heimavistar-og verknámsskóli í norður Úganda fyrir barnahermenn, heimilislaus börn og önnur ung fórnarlömb borgarastríðsins í landinu.[ 8]
Stjórnmál
Whitaker var stuðningsmaður Baracks Obama í forsetakosningunum árið 2008.[ 9] Þann 6. apríl, 2009, var Whitaker gefinn höfðingjatitill í Imo ríkinu í Nígeríu . Whitaker, var gerður að höfðingja á meðal Igbo fólksins í Nkwerre og var gefinn titilinn Nwannedinamba of Nkwerre , sem þýðir Bróðir í framandi landi .
Ferill
Sjónvarp
Fyrsta sjónvarpshlutverk Whitaker var árið 1982 í Making the Grade . Kom hann síðan fram í þáttum á borð við Hill Street Blues , The Fall Guy og North and South . Frá 2006-2007 þá lék Whitaker gestahlutverk í ER sem Curtis Ames og á samatíma þá var hann með gestahlutverk í The Shield sem Lieutenant Jon Kavanaugh. Árið 2010 þá tilkynnti CBS að búið væri að ráða Whitaker í hlutverk Sam Coopers í Criminal Minds: Suspect Behavior .[ 10] [ 11] Hætt var við framleiðslu á þættinum eftir aðeins 13 þætti vegna lélegs áhorfs.[ 12]
Kvikmyndir
Fyrsta kvikmyndahlutverk Whitaker var árið 1982 í Tag: The Assassination Game . Whitaker lék fótboltaleikmann í Fast Times at Ridgemont High þar sem hann lék á móti Judge Reinhold , Phoebe Cates og Sean Penn .
Árið 1986 lék hann í The Color of Money með Paul Newman og Tom Cruise og í Platoon . Árið eftir lék hann í Good Morning, Vietnam á móti Robin Williams . Árið 1988 var Whitaker boðið hlutverk Charlie Bird Parker í Bird sem var leikstýrt af Clint Eastwood . Síðan árið 1992 var hann ráðinn af Neil Jordan í hlutverk Jody í The Crying Game . Whitaker lék mafíu leigumorðingjann Ghost Dog í Ghost Dog: The Way of the Samurai árið 1999. Kom Whitaker síðan fram í kvikmyndum á borð við Battlefield Earth: A Saga of the Year 3000 , Panic Room og Phone Booth .
Whitaker lék eitt af aðalhlutverkunum í kvikmynd Baltasars Kormáks , A Little Trip to Heaven , þar sem hann lék Abe Holt.
Árið 2006 var Whitaker boðið hlutverk hershöfðingjans Idi Amin í The Last King of Scotland sem átti að verða leikstýrt af Kevin MacDonald . Fyrir hlutverk sitt í myndinni þá vann Whitaker Óskarsverðlaunin , Golden Globe verðlaunin, BAFTA verðlaunin, Screen Actors Guild-verðlaunin , New York Film Critics Circle verðlaunin og Los Angeles Film Critics Association verðlaunin meðal annars.
Hefur Whitaker síðan þá komið fram í kvikmyndum á borð við Ripple Effect , Vantage Point , Street Kings , Where the Wild Things Are , Repo Men og The Experiment .
Leikstjórn
Whitaker hefur leikstýrt þrem kvikmyndum Waiting to Exhale , Hope Floats og First Daughter . Einnig hefur hann leikstýrt tveimur sjónvarpsmyndum.
Kvikmyndir og sjónvarp
Kvikmyndir
Ár
Kvikmynd
Hlutverk
Athugasemd
1982
Tag: The Assassination Game
Lífvörður Gowdys
1982
Fast Times at Ridgemont High
Charles Jefferson
1985
Vision Quest
Balldozer
1986
The Color of Money
Amos
1986
Platoon
Stóri Harold
1987
Stakeout
Jack Pismo
1987
Goo Morning, Vietnam
Edward Garlick
1988
Bloodsport
Rawlins
1988
Bird
Charlie ´Bird´ Parker
1989
Johnny Handsome
Dr. Steven Fisher
1990
Downtown
Dennis Curren
1991
A Rage in Harlem
Jackson
1991
Diary of a Hitman
Dekker
1992
Article 99
Dr. Sid Handleman
1992
The Crying Game
Jody
1992
Consenting Adults
David Duttonville
1993
Body Snatchers
Majór Collins
1993
Bank Robber
Lögreglumaðurinn Battle
1994
Blown Away
Anthony Franklin
1994
Jason´s Lyric
Maddog
1994
Prêt-à-Porter
Cy Bianco
1995
Smoke
Cyrus Cole
1995
Species
Dan Smithson, Empath
1995
Mr. Holland´s Opus
Kidd
óskráður á lista
1996
Phenomenon
Nate Pope
1998
Body Count
Crane
1999
Ghost Dog: The Way of the Samurai
Ghost Dog
1999
Light It Up
Lögreglumaðurinn Dante Jackson
2000
Battlefield Earth: A Saga of the Year 3000
Ker
2000
Four Dogs Playing Poker
Mr. Ellington
2001
Green Dragon
Addie
2001
The Follow
The Employer
óskráður á lista
2001
The Fourth Angel
Fulltrúinn Jules Bernard
2002
Panic Room
Burnam
2002
Phone Booth
Kapteinn Ed Ramey
2004
First Daughter
Kynnir
Talar inn á
2005
Mary
Ted Younger
2005
A Little Trip to Heaven
Abe Holt
2005
American Gun
Carter
2006
Even Money
Clyde Snow
2006
The Marsh
Geoffrey Hunt
2006
The Last King of Scotland
Idi Amin
2006
Everyone´s Hero
Lonnie Brewster
Talaði inn á
2007
The Air I Breathe
Hamingja (Happiness)
2007
Ripple Effect
Philip
2007
The Great Debaters
Dr. James Farmer Sr.
2008
Vantage Point
Howard Lewis
2008
Chasseurs de Dragons
Lian-Chu
Talaði inn á ensku útgáfuna
2008
Street Kings
Kapteinn Jack Wander
2008
Winged Creatures
Charlie Archenault
2009
Powder Blue
Charlie
2009
Where the Wild Things Are
Ira
Talaði inn á
2009
Hurricane Season
Al Collins
2010
Our Family Wedding
Brad Boyd
2010
Repo Men
Jake
2010
My Own Love Song
Joey
2010
The Experiment
Barris
2010
Lullaby for Pi
George
2011
Catch .44
Ronny
2012
Freelancers
LaRue
2012
Ernest et Célestine
Ernest
Talaði inn á
2012
The Truth
Francisco Francis
2013
Last Stand
Alríkisfullrúinn John Bannister
2013
Receptence
Angel Sanchez
2013
Pawn
Will
2013
Zulu
Ali Sokhela
2013
The Butler
Cecil Gaines
2013
Out of the Furnace
Stjórinn Wesley Barnes
2013
Making a Scene
Maður
2013
Black Nativity
Presturinn Cornell Cobbs
2014
Two Men in Town
William Garnett
2014
Taken 3
Frank Dotzler
2014
Dope
Þulur
Talaði inn á
2016
Rogue One: A Star Wars Story
Saw Gerrera
2018
Black Panther
Zuri
Sjónvarp
Ár
Titill
Hlutverk
Athugasemd
1982
Making the Grade
ónefnt hlutverk
Þáttur: Marriage, Dave Style
1983
Cagney & Lacey
Næturvörður
Þáttur: The Grandest Jewel Thief of Them All
1984
Trapper Joh, M.D.
Lewis Jordan
Þáttur: School Nurse
1984
Hill Street Blues
Floyd Green
Þáttur: Blues for Mr. Green
1985
The Grand Baby
ónefnt hlutverk
Sjónvarpsmynd
1985
The Fall Guy
Vinur
Þáttur: Spring Break
1985
Diff´rent Strokes
Herman
Þáttur: Bully for Arnold
1985
North and South
Cuffey
6 þættir
1986
Amazing Stories
Jerry
Þáttur: Gather Ye Acorns
1986
North and South, Book II
Cuffey
6 þættir
1987
Hands of a Stranger
Sergeant Delaney
Sjónvarpsmynd
1990
Criminal Justice
Jessie Williams
Sjónvarpsmynd
1993
Last Light
Fred Whitmore
Sjónvarpsmynd
1993
Lush Life
Buddy Chester
Sjónvarpsmynd
1994
The Enemy Within
Colonel MacKenzie ´Mac´ Casey
Sjónvarpsmynd
1996
Rebound: The Legend of Earl ´The Goat´ Manigault
Mr. Rucker
Sjónvarpsmynd
1999
Witness Protection
Steven Beck
Sjónvarpsmynd
2001
Feast of All Saints
Daguerreotypist Picard
Sjónvarpsmynd
2002-2003
The Twilight Zone
Hann sjálfur/Kynnir
44 þættir
2005
Deacons for Defence
Marcus Clay
Sjónvarpsmynd
2006-2007
ER
Curtis Ames
6 þættir
2006-2007
The Shield
Lieutenant Jon Kavanaugh
13 þættir
2007-2009
American Dad
Turlington
3 þættir
2010
Criminal Minds
Sam Cooper
Þáttur: The Fight
2011
Criminal Minds: Suspect Behavior
Sam Cooper
13 þættir
Verðlaun og tilnefningar
AFI verðlaunin
2014: Verðlaun fyrir bestu mynd ársins fyrir Fruitvale Station ásamt Nina Yang Bongiovi.
Acapulco Black Film Festival
2014: Tilnefndur sem listamaður ársins fyrir Out of the Furnace , The Butler , Black Nativity og Fruitvale Station .
2014: Tilnefndur sem besti leikhópur fyrir The Butler .
2014: Tilnefndur sem besti leikhópur fyrir Black Nativity .
2014: Tilnefndur sem besti leikari fyrir The Butler .
2014: Tilnefndur fyrir bestu mynd ársins fyrir Fruitvale Station ásamt Nina Yang Bongiovi.
1999: Tilnefndur sem besti leikstjóri fyrir Hope Floats .
African-American Film Critics Association verðlaunin
BAFTA verðlaunin
BET verðlaunin
Biarritz International Festival of Audiovisual Programming verðlaunin
Black Reel verðlaunin
2014: Tilnefndur fyrir bestu myndina fyrir Fruitvale Station ásamt Nina Yang Bongoiovi.
2014: Tilnefndur sem besti leikari fyrir The Butler .
2010: Tilnefndur fyrir bestu talsetningu fyrir Where the Wild Things Are .
2007: Verðlaun sem besti leikari fyrir The Last King of Scotland .
2004: Verðlaun sem besti leikari í sjónvarpsmynd fyrir Deacons for Defense .
2004: Tilnefndur sem besti leikari í aukahlutverki fyrir Phone Booth .
2003: Tilnefndur sem besti leikari í aukahlutverki fyrir Panic Room .
Blockbuster Entertainment verðlaunin
1997: Verðlaun sem uppháhalds leikari í aukahlutverki fyrir Phenomenon .
Boston Society of Film Critics verðlaunin
British Independent Film verðlaunin
Broadcast Film Critics Association verðlaunin
CableACE verðlaunin
1994: Tilnefndur sem besti leikari í kvikmynd eða míniseríu fyrir Last Night .
Cannes Film Festival
1988: Verðlaun sem besti leikari fyrir Bird .
Capri, Hollywood
2006: Capri Legend verðlaunin.
Chicago Film Critics Association verðlaunin
Dallas-Fort Worth Film Critics Association verðlaunin
Deauville Film Festival
1993: Tilnefndur fyrir sjónvarpsmyndina Strapped .
Emmy verðlaunin
2010: Tilnefndur fyrir bestu heimildarmynd fyrir Brick City með Marc Levin, Mark Benjamin og Mala Chapple.
2007: Tilnefndur sem besti leikari í gestahlutverki í dramaseríu fyrir ER .
2003: Tilnefndur fyrir bestu sjónvarpsmyndina fyrir Door to Door með David A. Rosemont, Dan Angel, Billy Brown, Robert J. King og Warren Carr.
Florida Film Critics Circle verðlaunin
Golden Globes verðlaunin
2007: Verðlaun sem besti leikari í dramamynd fyrir The Last King of Scotland .
1989: Tilnefndur sem besti leikari í dramamynd fyrir Bird .
Gotham verðlaunin
2013: Tribute verðlaunin.
2013: Tilnefndur til áhorfendaverðlauna fyrir Fruitvale Station ásamt Ryan Coogler og Nina Yang Bongiovi
Hollywood Film Festival
2006: Verðlaun sem leikari ársins.
Image verðlaunin
2014: Verðlaun sem besti leikari í aðalhlutverki fyrir The Butler .
2014: Chairman´s verðlaunin.
2008: Tilnefndur sem besti leikari í aukahlutverki fyrir The Great Debaters .
2007: Verðlaun sem besti leikari fyrir The Last King of Scotland .
2004: Tilnefndur sem besti leikari í sjónvarpsmynd fyrir Deacons for Defense .
2004: Tilnefndur sem besti leikari í aukahlutverki fyrir Phone Booth .
1997: Tilnefndur sem besti leikari í aukahlutverki fyrir Phenomenon .
Independent Spirit verðlaunin
2014: Verðlaun sem besta myndin fyrir Fruitval Station ásamt Ryan Coogler og Nina Yang Bongiovi.
2007: Tilnefndur sem besti leikari fyrir American Gun .
International Documentary Association verðlaunin
2010: Tilnefndur fyrir áframhaldandi seríu fyrir Brick City ásamt Evan Shapiro, Lynne Kirby, Mala Chapple, Marc Levin, Mark Benjamin og Sarah Barnett.
2008: Tilnefndur sem besta heimildarmyndin fyrir Kassum the Dream ásamt Kief Davidson, Liz Silver, Keisha Whitaker og Joshua A. Green.
International Online Film Critics´ Pollverðlaunin
Iowa Film Criticts verðlaunin
Kansas City Film Critics Circle verðlaunin
Las Vegas Film Critics Society verðlaunin
London Critics Circle Film verðlaunin
Los Angeles Film Critics Association verðlaunin
NAMIC Vision verðlaunin
2007: Verðlaun sem besti leikari í dramaseríu fyrir The Shield .
2004: Tilnefndur sem besti leikari í sjónvarpsmynd fyrir Deacons for Defense .
National Board of Review, USA
National Society of Film Critics verðlaunin
New York Film Critics Circle verðlaunin
New York Film Critics, Online verðlaunin
News & Documentary Emmy verðlaunin
2012: Tilnefndur sem besta upplýsingaprógrammið – löngu formi fyrir Brick City ásamt Marc Levin, Mark Benjamin, Sarah Barnett, Michael Klein og Evan Shapiro.
North Texas Film Critics Association verðlaunin
Oklahoma Film Critics Circle verðlaunin
Online Film & Television Association verðlaunin
Online Film Critics Society verðlaunin
Óskarsverðlaunin
PGAverðlaunin
2014: Stanley Kramer verðlaunin fyrir Fruitvale Station ásamt Ryan Coogler og Nina Yang Bongiovi.
Peabody verðlaunin
2014: Verðlaun fyrir Brick City ásamt Marc Levin, Mark Benjamin, Sarah Barnett, Evan Shapiro, Lynne Kirby, Mala Chappble, Daphne Pinkerson, Kara Rozansky, Keith McQuirter, Jenner Furst, Vanessa Procopio, Daniel Praid og James Adolphus.
Phoenix Film Critics Society verðlaunin
Razzie verðlaunin
2001: Tilnefndur sem versti leikari í aukahlutverki fyrir Battlefield Earth: A Saga of the Year 3000 .
Sant Jordi verðlaunin
1989: Verðlaun sem besti erlendi leikari fyrir Bird og Good Morning, Vietnam .
Santa Barbara International Film Festival
Satellite verðlaunin
2013: Tilnefndur sem besti leikari í aðalhlutverki fyrir The Butler .
2006: Verðlaun sem besti leikari í dramamynd fyrir The Last King of Scotland .
2006: Tilnefndur sem besti leikari í aukahutverki í seríu/míniseríu eða kvikmynd fyrir sjónvarp fyrir The Shield .
Screen Actors Guild verðlaunin
2014: Tilnefndur sem besti leikari í aðalhlutverki fyrir The Butler .
2014: Tilnefndur sem besti leikhópur fyrir The Butler .
2007: Verðlaun sem besti leikari í aðalhlutverki fyrir The Last King of Scotland .
2004: Tilnefndur sem besti leikari í sjónvarpsmynd eða míniseríu fyrir Deacons for Defense .
1995: Tilnefndur sem besti leikari í sjónvarpsmynd eða míniseríu fyrir The Enemy Within .
Southeastern Film Critics Association verðlaunin
St. Louis Film Critics Association verðlaunin
Toronto Film Critics Association verðlaunin
Toronto International Film Festival
1993: International Critics´ verðlaunin (FIPRESCI) fyrir Strapped .
Vancouver Film Critics Circle
Walk of Fame
16. apríl, 2007: Stjarna á Walk of Fame göngugötuna, staðsett á 6801 Hollywood Blvd.
Washington DC Area Film Critics Association verðlaunin
Tilvísanir
↑ 1,0 1,1 1,2 Patterson, John. "The bigger picture," . The Guardian, 20. april, 2002. Skoðað 13. júlí 2007
↑ 2,0 2,1 Inside the Actors Studio Geymt 6 desember 2008 í Wayback Machine , Bravo, skoðað 13. júlí, 2007.
↑ „Cal Poly Pomona“ . CSU Mentor . Sótt 12. september 2008 .
↑ Joshua Rich. "Spotlight: Forest Whitaker." Geymt 13 ágúst 2011 í Wayback Machine EW.com .
↑ Sager, Mike. "What I've Learned: Forest Whitaker." Esquire . February 26, 2007.
↑ Ævisaga Forest Whitaker á IMDB síðunni
↑ PSA for PETA PETA TV.
↑ „Hope North“ . Hope North. Afrit af upprunalegu geymt þann apríl 20, 2010. Sótt 17. september 2010 .
↑ „Actor Forest Whitaker campaigns for Barack Obama at Grand Rapids Community College“ . The Grand Rapids Press . 9. október 2008. Sótt 14. janúar 2010 .
↑ Michael Ausiello (25. janúar 2010). „Scoop: Forest Whitaker to headline 'Criminal Minds' spin-off!“ . Entertainment Weekly . Afrit af upprunalegu geymt þann 28. janúar 2010. Sótt 7. apríl 2010 .
↑ Chuck Barney (7. apríl 2010). „Criminal Minds proves actor Moore than pretty face“ . Associated Press . Afrit af upprunalegu geymt þann 6. júní 2010. Sótt 7. apríl 2010 .
↑ Andreeva, Nellie (17. maí 2011). „CBS renews 'CSI:NY', cancels 'Criminal Minds: Suspect Behavior' “ . Deadline Hollywood . Sótt 17. maí 2011 .
Heimildir
Tenglar