Árni Ólafsson Skálholtsbiskup kom til landsins á eigin skipi og tók við biskupsembættinu og hirðstjórn, en Björn Jórsalafari hafði gegnt hirðstjóraembættinu í umboði Árna frá 1413.
Vigfús Ívarsson sigldi til Englands frá Hafnarfirði og hafði með sér 60 lestir skreiðar og mikla fjármuni aðra. Hann heimsótti gröf hins helga Tómasar Becket í Kantaraborg og gaf þar mikla peninga til bænahalds fyrir sér, konu sinni og börnum.
4. júlí - Gregoríus XII páfi sagði af sér á kirkjuþinginu í Konstans. Kirkjuþingið hafði samþykkt að allir páfarnir þrír, Gregoríus og mótpáfarnir Jóhannes XXIII og Benedikt XIII, skyldu segja af sér svo að unnt yrði að sameina kirkjuna að nýju. Gregoríus varð við því en hinir ekki og var Jóhannes fangelsaður en Benedikt bannfærður og afsettur 1517. Þar með lauk sundrungu kaþólsku kirkjunnar, sem staðið hafði frá 1378.
6. júlí - Jan Hus (Jóhann Húss), tékkneskur siðbótarmaður, var dæmdur fyrir villutrú á kirkjuþinginu í Konstans og brenndur á báli sama dag. Hann hafði verið kallaður til Konstans til að gera grein fyrir kenningum sínum en gafst ekki tækifæri til þess því hann var fljótlega handtekinn og fékk ekki að verja sig fyrir réttinum.