Wuppertal er borg í Þýskalandi við Wupper-ána í suðurhluta Ruhr-héraðs. Íbúar borgarinnar eru um 354 þúsund (2018). Hún myndaðist með samruna borganna Elberfeld og Barmen 1929. Í Wuppertal er elsta hangandi sporvagnakerfi heims.
Hún er hluti af Rín-Ruhr-stórborgarsvæðinu.