Sven B.F. Jansson – fullu nafni Sven Birger Fredrik Jansson, oft kallaður Rúna-Janni – (19. janúar1906 – 19. apríl1987), var sænskurrúnafræðingur, sem var prófessor í rúnafræði við Stokkhólmsháskóla og þjóðminjavörður Svía 1966–1972.
Hann var landskunnur í Svíþjóð sem fremsti rúnafræðingur Svía og var nánast persónugervingur fræðigreinarinnar. Þegar fregnir bárust af því að fundist hefði rúnarista á steini eða klöpp, leið ekki á löngu þar til Rúna-Janni var kominn á staðinn til að rannsaka hana. Hann lagði áherslu á að miðla niðurstöðunum til almennings og lífgaði oft upp á frásögnina með hæfilegri gamansemi. Með því að gera efnið áhugavert og koma því á framfæri, t.d. í útvarpsfyrirlestrum, stuðlaði hann að því að fólk tilkynnti um nýja rúnafundi.
Rúnasteina má finna um Norðurlöndin öll, en Svíþjóð sker sig úr vegna fjölda þeirra.
Sven B.F. Jansson hélt góðum tengslum við Ísland frá því að hann var hér sendikennari. Hann tók saman ásamt öðrum íslensk-sænska orðabók sem kom fyrst út 1943 og oft síðan, talsvert aukin. Í fyrstu þremur útgáfunum eru þeir Gunnar Leijström og Jón Magnússon skráðir meðhöfundar.