Prófessor er kennari við háskóla með minni kennsluskyldu en lektor og dósent en meiri rannsóknarskyldu. Víða eru allir háskólakennarar nefndir prófessorar, einkum í enskumælandi löndum, en hliðstæður greinarmunur er þá gerður á nokkrum heitum:
Assistant professor (jafngildir lektor)
Associate professor (jafngildir dósent)
Full professor eða senior professor (jafngildir prófessor)
Professor emeritus upp á latínu (prófessor á eftirlaunum).