Stephen Joseph Harper (f. 30. apríl1959) er kanadískur stjórnmálamaður, fyrrverandi forsætisráðherra og formaður Íhaldsflokksins. Hann varð forsætisráðherra eftir að flokkur hans myndaði minnihlutastjórn eftir þingkosningarnar 2006.
Harper fæddist í Toronto og er elstur þriggja systkina. Hann skráði sig í háskólanám við Háskólann í Torronto en hætti eftir tvo mánuði.[1] Síðar flutti hann til borgarinnar Edmonton í fylkinu Alberta og hélt háskólanámi sínu áfram við Háskólann í Calgary þar sem hann lauk BA-gráðu í hagfræði og útskrifaðist 1993 með mastersgráðu í sömu grein.
Hann bauð sig fyrst fram til þingsetu á kanadíska þinginu í þingkosningunum 1988 þegar hann bauð sig fram í kjördæminu Vestur Calgary en náði ekki kjöri. Hann komst fyrst á þing 1993.
Tilvísanir
↑William Johnson, Stephen Harper and the Future of Canada, bls. 12