Hluti túnsins tilheyrði bænum Klömbrum sem stóð þar til um miðja 20. öld. Reykjavíkurbær eignaðist Klömbrur árið 1946. Tveimur árum síðar var þar hafinn rekstur skólagarða fyrir reykvísk ungmenni. Á sjöunda áratugnum var Klambratúni breytt í skrúðgarð og hlaut hann nafnið Miklatún að undangenginni nafnasamkeppni.
Þann 30. júlí2006 hélt hljómsveitin Sigur Rós stóra tónleika á túninu, talið er að um 20 þúsund manns hafi verið á túninu þegar mest var. Í kjölfarið var ákveðið að færa tónleika Menningarnætur árið 2007 á túnið[1]. Tónleikar Menningarnætur voru tvö sumur á túninu, en fluttust í Hljómskálagarðinn árið 2009[2].
Á túninu hefur verið komið upp aðstöðu til að leika frisbígolf[3].