Annað árið í röð gerði Selfoss ekkert jafntefli og á þremur árum gerðu þeir einungis 1 jafntefli í 2. deild.
Daginn fyrir lokaleik sumarsins, sem fór fram þann 14. september, sendu Völsungar Ísfirðingum bréf þess efnis að þeir kæmust ekki. Ísfirðingar tóku þetta þó ekki það alvarlega og mættu til leiks með dómurunum, en Húsvíkingar létu ekki sjá sig. Leikurinn var löglega flautaður á og af og hlutu Ísfirðingar stigin 2 með 3 mörkum skoruðum. Mikið fjaðrafok var út af þessu í dagblöðunum og veltu menn fyrir sér hvort Völsungur ætti afturgengt í 2. deild. Þeir tóku engu að síður þátt næsta ár.