Nýtt snið var á fallbaráttunni þetta ár. Neðstu liðin léku innbyrðis um hvort liðið myndi leika úrslitaleik um laust sæti í 2. deild við liðið sem lenti í 2. sæti í C-deild. Þróttur og HSH léku þann leik. Þróttarar unnu nokkuð auðveldlega 9-1
Tvö efstu liðin léku sín á milli um laust sæti í efstu deild. Ekki var öll nótt úti fyrir tapliðið því það fékk síðan leik gegn neðsta liðinu í efstu deild um annað laust sæti.
Markið sem kom Víkingum upp var mjög umdeilt, það var úr vítaspyrnu en deilt var bæði um hvort eitthvert brot hafði átt sér stað og hvort markvörður Blika hafði ekki varið boltann á línunni. Dómararnir sögðu þó að boltinn væri inni. Þetta var þriðja vítaspyrnan í leiknum og kom á síðustu mínútunni í framlengingu.