17. júlí var haldinn á Selfossi stofnfundur hjá nýju íþróttafélagi. Félagið ber heitið Íþróttafélagið Mílan og hefur handknattleik á stefnuskrá sinni.
Á stofnfundi ÍF Mílan var kosin stjórn félagsins en hana skipa Birgir Örn Harðarson, formaður, Eyþór Jónsson, gjaldkeri og Örn Þrastarson, Aron Valur Leifsson og Atli Kristinsson, meðstjórnendur.
Fyrst um sinn verður bara starfræktur meistaraflokkur karla en um þrjátíu einstaklingar eru nú þegar í hópnum. Félagarnir ætla sjálfir að standa undir kostnaði við æfingar og þjálfun en stefnt er að því að æfa 2–3 í viku. Heimavöllur liðsins verður í Vallaskóla á Selfossi. Liðið hyggst þó spila einhverja leiki á öðrum handboltavöllum á Suðurlandi eins og t.d. Hellu, Hvolsvelli og Laugarvatni. Búningur liðsins verður græn treyja og hvítar buxur. [1]
Fyrsta tímabilið
ÍF. Mílan fékk leyfi frá ÍSÍ til að leika handknattleik í 1. deild tímabilið 2014/15. Fyrsti opinberi leikur liðsins var laugardaginn 20. september2014 gegn Hamrarnir. Magnús Már Magnússon hlaut þann heiður að skora fyrsta opinbera mark ÍF. Mílan. leikurinn endaði með öruggum sigri Mílan 21-15(9-7).[2]
Eyvindur Hrannar Gunnarsson varð fyrstur leikmanna ÍF. Mílan til að fá rautt spjald í leik gegn ÍH sem tapaðist 24-23(12-13) í Kaplarika 26. september2014.
8. febrúar2015 spilaði ÍF. Mílan við KR og gerðu liðin jafntefli 27-27(13-13). Í leiknum setti Örn Þrastarson markamet fyrir ÍF. Mílan í einum leik þegar hann skoraði 14 mörk.
ÍF. Mílan lauk sínu fyrsta tímabili með sigri á ÍH 22-31 Í Kaplakrika sem skilaði liðinu 7 sæti í 1. deild karla með 10 stig. En liðinu var spáð 8 sæti í spá fyrirliða, þjálfara og formanna liðanna í 1.deild.
Á stjórnarfundi ÍF. Mílan 28. apríl2015 var kosin ný stjórn félagsins en hana skipa Birgir Örn Harðarson, formaður, Eyþór Jónsson, gjaldkeri, Atli Kristinson, Leifur Örn Leifsson, Marinó Geir Lilliendahl og Örn Þrastarson, meðstjórnendur.
Annað tímabilið í 1. deild karla
ÍF. Mílan hóf sitt annað tímabil í 1. deild karla með sigri á Fjölni 24-22 í Vallaskóla föstudagskvöldið 18. september2015. Í leiknum jafnaði Atli Kristinsson markamet ÍF. Mílan í einum leik þegar hann skoraði 14 mörk. Mílan spilaði sinn fyrsta bikarleik í sögu félagsins mánudagskvöldið 26. október2015. í 32-liða úrslitum gegn Fjölni. Liðið tapaði leiknum 22-27. ÍF. Mílan endaði í 6 sæti á sínu öðru tímabili í 1.deild karla með 13 stig. Atli Kristinsson var annað tímabilið í röð markahæstur með 99 mörk þrátt fyrir að spila einungis 11 af 21 leik liðsins.
Þriðja tímabil í 1. deild karla
Mílan hóf tímabilið í 1. deild karla á því að gera jafntefli við ÍR 22-22. Næst leikur liðsins var gegn Hömrunum sem vannst 30-27. Liðið hinsvegar tapaði næstu 20 leikjum og enduðu neðstir í 1. deild karla með 3 stig í 12 sæti. Atli Kristinsson varð markahæstur þriðja árið í röð með 77 mörk í 11 af 22 leikjum liðsins. Eyþór Jónsson varð leikjahæsti leikmaður Mílan á tímabilinu með því að spila sinn 55 leik.