Þórunn Erna Clausen (f. 12. september 1975) er íslensk leikkona.
Þórunn Erna er dóttir hins dansk ættaða Hauks Clausen (8. nóvember 1928 – 1. maí 2003), tannlæknis og frjálsíþróttamanns, og konu hans Elínar Hrefnu Thorarensen (f. 17. febrúar 1944). Hún lærði leiklist við Webber Douglas Academy í London og útskrifaðist þaðan árið 2001.
Þórunn Erna hefur meðal annars leikið Rauðhettu í Hafnarfjarðarleikhúsinu og Dóru í Lykli um hálsinn í Vesturporti. Hún lék einnig í einleiknum Ferðir Guðríðar í Skemmtihúsinum, bæði á ensku og þýsku, og í söng- og spunasýningunni Le Sing á Broadway. Hún lék Nansí í söngleiknum Ólíver hjá Leikfélagi Akureyrar og Sue í Dýrlingagenginu sem sett var upp í Listasafni Reykjavíkur og hlaut fyrir það tilnefningu til Grímunnar árið 2003 sem leikkona ársins í aukahlutverki.
Hún var tilnefnd til Edduverðlauna árið 2004 fyrir aukahlutverk í kvikmyndinni Dís og árið 2005 fyrir aðalhlutverk í sjónvarpsþáttunum Reykjavíkurnætur. Af öðrum sjónvarps- og kvikmyndaverkefnum má nefna Mannaveiðar, Maður eins og ég, Going up, Fjölskyldu og Rétt 2.
Þórunn Erna hefur lengst af starfað við Þjóðleikhúsið og meðal annars leikið þar í Syngjandi í rigningunni, Ragnheiði Birnu í Þetta er allt að koma, Reyndar í Leitinni að jólunum, í Virkjuninni, Sælueyjunni, móðurina í Sitji guðs englar, bangsann í Góðu kvöldi og Tínu í Konan áður. Í Borgarleikhúsinu lék Þórunn Erna systur Margréti í Söngvaseið og var aðstoðarleikstjóri í leiksýningunni Fjölskyldan – ágúst í Osage-sýslu.
Þórunn Erna leikur nú í nýrri leikgerð af einleiknum um Guðríði Þorbjarnardóttur, Ferðasögu Guðríðar á íslensku í Víkingaheimum í Reykjanesbæ.
Þórunn Erna var gift tónlistarmanninum Sigurjóni Brink, en saman sömdu þau lagið Aftur heim, sem var framlag Íslands í Söngvakeppni evrópskra sjónvarpsstöðva 2011. Sigurjón lést skyndilega þann 17. janúar 2011.
Ár |
Kvikmynd/Þáttur |
Hlutverk |
Athugasemdir og verðlaun
|
1999 |
Citizen Cam |
Tessa Thorleitsdottir |
|
2002 |
Maður eins og ég |
Kynlífsstelpa |
|
2004 |
Dís |
Magga |
Tilnefnd til Eddunnar sem leikari/leikkona ársins í aukahlutverki
2005 Reykjavíkurnætur (Dóra) Sjónvarpsþættir fyrir stöð 2. (Tilnefnd til Edduverðlaunanna/Eddunnar sem leikari/leikkona ársins í aðalhlutverki
2007 Mannaveiðar sjónvarpsþættir fyrir RUV
2008 Going Up stuttmynd eftir Óskar Jónasson
2010 Réttur 2 sjónvarpsþættir fyrir stöð 2
|
Tenglar