William Henry Harrison (9. febrúar1773 – 4. apríl1841) var níundi forseti Bandaríkjanna og þjónaði því embætti frá 4. mars1841 til 4. apríl1841. Þegar Harrison tók við embætti, 68 ára að aldri, var hann elsti maðurinn sem hafði tekið við embætti forseta og stóð það met í 140 ár eða þangað til Ronald Reagan varð forseti, 69 ára að aldri. Harrison lést eftir einungis 31 dag í embætti og er það stysta tímabil sem nokkur forseti hefur þjónað í sögu Bandaríkjanna. Hann varð einnig fyrsti forsetinn til að deyja í embætti.