Stríðið varði í þrjú ár, og gekk á ýmsu. Vesturveldin — Bretland, Frakkland og Bandaríkin — settu vopnasölubann á Spán, og töldu síst þörf á því að senda meira af vopnum til lands sem þegar logaði í ófriði. ÖxulveldinÞýskaland og Ítalía studdu hins vegar uppreisn falangista, enda verulegur skyldleiki þeirra við þýska nasismann og ítalska fasismann. Sovétríkin studdu lýðveldið eftir atvikum, en höfðu hvorki tök á að blanda sér beint í stríðið né að veita lýðveldissinnum nægan stuðning til þess að vinna það.
Mikill fjöldi manna frá öðrum löndum tók samt þátt í Spánarstríðinu sem sjálfboðaliðar, oftast með her lýðveldisins. Þjóðverjar og Júgóslavar áttu flesta fulltrúa, en Frakkar, Bretar, Bandaríkjamenn, Albanir, Ítalar og fleiri líka. Þeir sem komu frá löndum þar sem fasismi ríkti börðust oft í óþökk yfirvalda í heimalandinu, og áttu stundum vandræði yfir höfði sér þegar þeir sneru heim. Tæpast nema þrír Íslendingar tóku þátt í Spánarstríðinu.
Árið 1939 lauk styrjöldinni með algerum sigri falangista. Foringi þeirra, Francisco Franco, varð einræðisherra yfir Spáni og ríkti til dauðadags. Frá því lýðveldissinnar töpuðu stríðinu, hafa mismunandi fylkingar þeirra kennt hver annarri um, ekki síst annars vegar anarkistar og kommúnistar, en hins vegar stalínistar og trotskíistar.
Neðanmálsgreinar
↑POUM barðist í spænsku borgarastyrjöldinni frá 17. júlí 1936 til 16. júní 1937, en samtökin voru síðan bönnuð og leyst upp af stjórn Alþýðufylkingarinnar undir stjórn Juans Negrín forsætisráðherra að tilstuðlan Jósefs Stalín, Komintern og spænska kommúnistaflokksins.
↑ 9,09,1Simkin, J. (2012). "Spanish Civil War". The Spanish Civil War Encyclopedia (Ser. Spanish Civil War). University of Sussex, Spartacus Educational E-Books.
↑Maestre, Francisco; Casanova, Julián; Mir, Conxita; Gómez, Francisco (2004). Morir, matar, sobrevivir: La violencia en la dictadura de Franco. Grupo Planeta. ISBN 978-8484325062.
↑Jackson, Gabriel (1967). The Spanish Republic and the Civil War, 1931–1939. Princeton University Press. ISBN 0691007578.