Löndin tvö voru með sama einvaldinn síðan Union of the Crowns árið 1603, þegar Jakob 6. Skotakonungur erfði ensku krúnuna eftir frænku sína Elísabet 1. Reynt hafði verið að sameina ríkin tvö árin 1606, 1667 og 1689 en það var ekki þar til byrjunar 18. aldarinnar að bæði þing voru sammála sambandi.
Lögin gengi í gildi þann 1. maí1707. Á þessa dagsetningu sameinuðust skoska þingið og enska þingið til að mynda breska þingið, staðsett í Westminsterhöllinni í London. Hún var áður höfuðstöðvar enska þingsins.[2] Þannig eru lögin þekkt sem Þingasambandið (e. Union of the Parliaments).