Hann fæddist í London og útskrifaðist í sálfræði, stjórnmálafræði og hagfræði við Oxford-háskóla áður en hann fór í meistaranám í hagfræði við London School of Economics. Hann varð blaðamaður og svo rannsóknarmaður í Verkamannaflokknum. Í gegnum árin kynntist hann Gordon Brown og varð formaður efnahagsráðgjafaráðs hjá breska fjármálaráðuneytinu.
Þegar Gordon Brown varð forsætisráðherra árið 2007 skipaði hann Miliband í embætti ráðherra fyrir ríkisstjórnina. Hann hlaut stöðuhækkun árið 2008 þegar hann var skipaður í nýja embættið orku- og loftlagsbreytingaráðherra. Árið 2010 hætti hann í þessu starfi og varð leiðtogi Verkamannaflokksins. Hann gegndi þeirri stöðu til ársins 2015 en þá sagði hann af sér eftir slæmt gengi í þingkosningum þess árs og við honum tók Jeremy Corbyn.[1]
Árið 2024 varð Miliband orkumálaráðherra í ríkisstjórn Keirs Starmer.[2]