Úmbría (ítalska: Umbria) er fjallent og hæðótt hérað á Mið-Ítalíu með landamæri að Toskana í vestri, Latíum í suðri og Marke í austri. Höfuðstaður héraðsins er háskólaborgin Perugia. Íbúar héraðsins eru um 870 þúsund (2020) og búa í 92 sveitarfélögum.