Horft yfir Tórínó með Alpafjöllin í baksýn.
Tórínó (ítalska : Torino ) er borg á Norður-Ítalíu í Fjallalandi (Piemonte) á vesturbakka árinnar Pó . Íbúar sveitarfélagsins eru um 870.000 (2020 ) en heildarfjöldi á borgarsvæðinu er 2,2 milljónir. Rómverjar stofnuðu borgina árið 28 f.Kr. og eftir fall Rómaveldis ruddust Langbarðar til valda í borginni og síðan Frankar . Borgin varð hluti af hertogadæminu Savoja og höfuðborg þess ríkis 1563 og síðar konungsríkisins Sardiníu þegar það rann saman við hertogadæmið 1720 . 1861 varð Tórínó svo höfuðborg sameinaðrar Ítalíu til 1865 þegar Flórens var gerð að höfuðborg. Borgin er mikil iðnaðarborg og verksmiðjur bílaframleiðandans Fiat voru stofnaðar þar 1899 .
Mole Antonelliana, Tórínó
Árið 2006 voru vetrarólympíuleikarnir haldnir í borginni og nágrenni hennar. Borgin dregur nafn sitt af keltneskum þjóðflokki sem hafðist við á svæðinu áður en Rómverjar réðust þar inn.
Knattspyrnulið borgarinnar eru Juventus og Torino F.C. .