Sambandið varð til við upplausn Sovétríkjanna og tilgangur þess var að auðvelda aðskilnað lýðveldanna. Ýmsir hafa þó haldið því fram að sambandið sé tæki Rússlands til að viðhalda áhrifum sínum í lýðveldunum. Frá stofnun hafa SSR-ríkin gert með sér marga samninga sem varða samstarf á sviði efnahagsmála, varnarmála og utanríkisstefnu.
Sambandið var stofnað 8. desember1991 af leiðtogum Rússlands, Hvíta-Rússlands og Úkraínu.