Mið-Jótland (danska : Midtjylland ) er eitt af fimm héruðum Danmerkur . Höfuðstaður héraðsins er í Viborg , en Árósar eru fjölmennasta sveitarfélagið.
Áður var Mið-Jótland lauslega tilgreint landssvæði í Danmörku . Til eru mismunandi afmarkanir af svæðinu en yfirleitt er það talið fela í sér Herning , Ikast , Brande , Bjerringbro , Viborg , Skive og oftast Silkeborg í austri, stundum ytri staði eins og Grindsted , Billund og Give í suðri, og Holstebro norðvestan til. Mið-Jótland skarast í miklum mæli á Vestur-Jótlandi , að hluta til á Austur-Jótlandi og á jaðarsvæðum Norðurvestur-Jótlands og Suður-Jótlands .
Sveitarfélög
Það eru 19 sveitarfélög á Mið-Jótlandi. Sveitarfélagið Árósar er fjölmennasta sveitarfélagið með um 350 þúsund íbúa 2021.[ 1] Ringkøbing-Skjern er stærsta sveitarfélag Danmerkur og nær yfir tæpa 1500 ferkílómetra.
Sveitarfélög á Mið-Jótlandi.
Tilvísanir