Múhameð Morsi (8. ágúst 1951 – 17. júní 2019) var egypskur stjórnmálamaður sem var fimmti forseti Egyptalands, frá 30. júní 2012 til 3. júlí 2013. Þann dag framdi hershöfðinginn Abdel Fattah el-Sisi valdarán og settist á valdastól í stað Morsi eftir fjöldamótmæli gegn forsetanum.[1] Morsi var íslamisti og meðlimur í hinu egypska Bræðralagi múslima.
Morsi var kjörinn forseti Egyptalands árið 2012 í kjölfar byltingarinnar árið áður gegn Hosni Mubarak forseta.[2] Sem forseti setti Morsi tímabundnar stjórnartilskipanir sem gáfu honum óskoruð völd til að setja lög án aðhalds dómara og annarra lagastofnanna. Íslamistar á stjórnlagaþingi Egyptalands skrifuðu þá í flýti nýja stjórnarskrá og sendu hana forsetanum til staðfestingar og áætlaðrar þjóðaratkvæðagreiðslu áður en hæstiréttur Egyptalands gat tekið ákvörðun um lögmæti stjórnlagaþingsins. Sjálfstæðir fjölmiðlar sem voru ekki á mála hjá stjórn Morsi lýstu þessum verknaði sem „valdaráni íslamista“.[3] Þessi ágreiningsmál[4] og kvartanir yfir ofsóknum gegn blaðamönnum og mótmælendum[5] leiddu til nýrra fjöldamótmæla árið 2012.[6][7] Til að miðla málum dró Morsi því til baka stjórnartilskipanirnar sem höfðu aukið völd hans.[8] Þegar þjóðaratkvæðagreiðsla var haldin samþykktu u.þ.b. tveir þriðju kjósenda nýju stjórnarskrána.[9]
Þann 30. júní 2013 brutust mótmæli út á ný um allt Egyptaland og andófsmenn kröfðust afsagnar forsetans.[10][11][12]Egypski herinn gaf Morsi þá úrslitakosti að ef honum tækist ekki að leysa úr stjórnmálakreppunni og uppfylla kröfur þeirra innan 48 klukkustunda myndi herinn grípa inn í og „marka þeirra eigin stefnu“ fyrir landið.[13] Morsi var síðan steypt af stóli þann 3. júlí að undirráði herráðs sem Abdel Fattah el-Sisi varnarmálaráðherra fór fyrir.[14][15] Herinn nam úr gildi nýju stjórnarskrána og stofnaði nýja stjórn undir forystu Sisi hershöfðingja.[16] Bræðralag múslima mótmælti valdaráninu en mótmæli stuðningsmanna Morsi voru kveðin niður í Rabaa-fjöldamorðunum í ágúst 2013 þar sem um 817 almennir borgarar voru drepnir.[17]
Eftir að Morsi var steypt af stóli ákærðu ríkissaksóknarar hann fyrir ýmsa glæpi og sóttust eftir því að hann sætti dauðarefsingu. Hann var meðal annars sakaður um að leka ríkisleyndarmálum Egyptalands og Katar til Bræðralags múslima. Morsi var dæmdur til dauða en dómurinn var ógildur eftir áfrýjun og því stóð til að rétta yfir honum í annað sinn.[18] Þegar önnur réttarhöld yfir Morsi fóru fram þann 17. júní árið 2019 hneig Morsi niður, var fluttur á sjúkrahús og úrskurðaður látinn.[19][20]
↑El Rashidi, Yasmine (7. febrúar 2013). „Egypt: The Rule of the Brotherhood“. New York Review of Books. Sótt 24. september 2013. „The Islamists' TV channels and press called the completion of the draft constitution an 'achievement', 'historic', 'an occasion', 'another step toward achieving the goals of the revolution'. The independent and opposition press described it as 'an Islamist coup'.“