Kraftlyftingar hafa verið stundaðar á Íslandi frá því um 1960.[4] Árið 1969 var stofnuð lyftinganefnd innan ÍSÍ sem starfaði þar til 1973 þegar nefndin varð að löggildu sérsambandi sem bar heitið Lyftingasamband Íslands.[4] Undir lögsögu Lyftingasambandsins voru stundaðar bæði kraftlyftingar og ólympískar lyftingar og kepptu menn jafnvel í báðum íþróttum. Það var svo 2. mars1985 sem að hið upprunalega Kraftlyftingasamband Íslands var stofnað[4], utan ÍSÍ. Kraftlyftingamenn töldu þörf á að stofna sitt eigið samband eftir að innan lyftingasambandsins hafði starfað sjálfstæð kraftlyftingadeild um nokkurt skeið.[4]
Í desember2008 var samþykkt að sækja um aðild að ÍSÍ[1] og hófst það ferli með stofnun kraftlyftinganefndar 19. mars2009 og fluttist þar með aðild gamla KRAFT að alþjóðasamböndum um kraftlyftingar yfir til hinnar nýstofnuðu kraftlyftinganefndar.[5] Á Íþróttaþingi ÍSÍ2009 var samþykkt að stofnað yrði Kraftlyftingsamband Íslands þegar komin væru á legg kraftlyftingafélög í að minnsta kosti 5 héraðssamböndum.[6][1] Hinn 15. desember2009 hafði þetta skilyrði verið uppfyllt og var framkvæmdastjórn ÍSÍ sent bréf þess efnis.[1] Þann 15. apríl2010 var haldinn stofnfundur hins nýja Kraftlyftingasambands Íslands[1] sem nú var löggilt sérsamband innan ÍSÍ.