Newton sagðist þola illa gagnrýni og þess vegna birti hann ekki niðurstöður rannsókna sinna fyrr en seint og um síðir og sumar aldrei. Sem dæmi um þetta er sagt að Edmund Halley, sem halastjarnaHalleys er kennd við, hafi árið 1684 stungið upp á því við Newton að hann kannaði hvernig það aðdráttarlögmál væri, sem leiddi af sér niðurstöður Keplers um hreyfingar reikistjarnanna. Þá svaraði Newton því til, að þetta væri hann búinn að leiða út fyrir mörgum árum. Það væri lögmálið um andhverfu fjarlægðarinnar í öðru veldi. Halley var undrandi á að Newton skyldi ekki hafa gefið þetta út, og skoraði á hann að birta niðurstöður rannsókna sinna. Newton lét loks af því verða árið 1687, er hann gaf út höfuðrit sitt Philosophiae Naturalis Principia Mathematica. Hin frægu þrjú lögmál Newtons, sem hann setti fram í bókinni, leggja grunninn að klassískri aflfræði, en 2. lögmálið gefur tengsl krafts og hröðunar á þann veg að kraftur sé jafn margfeldi massa og hröðunar, það er . Lögmál Newtons stóðu óhögguð í rúm 200 ár, en afstæðiskenningin sýndi að breyta þurfti þeim þegar fengist var við hluti sem fara með hraða, sem er nærri ljóshraða.
Meint viðkvæmni Newtons fyrir gagnrýni kom líka í veg fyrir að hann birti niðurstöður sínar í örsmæðareikningi þar til eftir að Leibniz hafði gert grein fyrir sínum niðurstöðum. Nú þykir nokkuð víst að Newton gerði uppgötvanir sínar á undan Leibniz, en lokaði þær niðri í skúffu. Leibniz hafði aldrei heyrt um þær getið er hann gerði sínar uppgötvanir fáum árum síðar og birti niðurstöðurnar strax. Þá loks dreif Newton sig í að koma sínum útreikningum á framfæri. Af þessum sökum eru þeir báðir taldir upphafsmenn örsmæðareiknings og er ekki gert upp á milli þeirra hvað það varðar.
Newton smíðaði fyrsta nothæfa spegilsjónaukann og þróaði litafræði með athugunum sínum á því hvernig hvítt ljós brotnar í litróf sýnilegs ljóss þegar það fer gegnum glerstrending. Hann gerði grein fyrir tilraunum sínum með ljós í bókinni Opticks sem kom út árið 1704. Hann setti einnig fram reynslulögmál um kælingu, gerði fyrstu fræðilegu útreikningana á hljóðhraða og setti fram hugmyndina um newtonskan vökva. Auk vinnu sinnar við örsmæðareikning lagði stærðfræðingurinn Newton framlög til rannsókna á veldaröðunum, leiddi tvíliðuregluna út fyrir aðrar tölur en heiltölur, þróaði aðferð til að námunda núllstöðvar falls og flokkaði flesta ferla þriðja stigs margliða.
↑Samkvæmt gregoríska tímtalinu sem nú er í notkun fæddist Newton 4. janúar 1643 og dó 31. mars 1727.
↑Anders Hald 2003 – A history of probability and statistics and their applications before 1750 – 586 pages Volume 501 of Wiley series in probability and statisticsWiley-IEEE, 2003Geymt 2 júní 2022 í Wayback Machine
↑Whiteside, D.T., ed. (1974). Mathematical Papers of Isaac Newton, 1684–1691. 6. Cambridge University Press. pp. 30–91.Geymt 10 júní 2016 í Wayback Machine
↑Kom út nafnlaust sem greinin „Scala graduum Caloris. Calorum Descriptiones & signa.“ í Philosophical Transactions, 1701, 824Geymt 21 janúar 2020 í Wayback Machine–829;
ed. Joannes Nichols, Isaaci Newtoni Opera quae exstant omnia, vol. 4 (1782), 403Geymt 17 júní 2016 í Wayback Machine–407.
Mark P. Silverman, A Universe of Atoms, An Atom in the Universe, Springer, 2002, p. 49.Geymt 24 júní 2016 í Wayback Machine