Gurbanguly Mälikgulyýewiç Berdimuhamedow (f. 29. júní 1957) er túrkmenskur stjórnmálamaður sem var forseti Túrkmenistan frá árinu 2006 til ársins 2022. Hann tók sér opinbera heiðurstitilinn Arkadag (ísl. Verndarinn). Berdimuhamedow fór fyrir einræði sem einkenndist af mikilli persónudýrkun á forsetanum.
Árið 2022 sagði hann óvænt af sér og lét son sinn, Serdar, taka við forsetaembættinu. Gurbanguly Berdimuhamedow er þó enn í reynd valdamesti maður landsins sem formaður Alþýðuráðs Túrkmenistan og ber jafnframt titilinn „þjóðarleiðtogi túrkmenskrar alþýðu“.
Faðir Gurbanguly, Malikguly Berdimuhamedow, var embættismaður í fangelsisvarðadeild innanríkisráðuneytis Sovétríkjanna. Hann fór á eftirlaun árið 1982 og hafði þá tign undirofursta innan lögreglunnar.[1][2] Afi Gurbanguly, Berdimuhamed Annaýew, vann sem skólakennari.[3] Hann gegndi þjónustu í rauða hernum í seinni heimsstyrjöldinni og herdeild hans var meðal þeirra fyrstu sem náðu yfir Dnjeprfljót í september 1943.[4] Hann lét lífið í Asgabatjarðskjálftanum í október árið 1948.[5]
Gurbanguly Berdimuhamedow útskrifaðist frá túrkmenska læknaháskólanum árið 1979 og hóf feril sem tannlæknir í Asgabat. Nokkrum árum síður ferðaðist hann til Moskvu til að hefja doktorsnám í læknavísindum. Þegar hann sneri heim til Túrkmenistan varð hann prófessor við tannlæknadeild Læknaháskóla Túrkmenistan árið 1990. Nokkru síðar hlaut hann stöðu við heilbrigðisráðuneyti landsins árið 1995 og var útnefndur heilbrigðisráðherra árið 1997. Árið 2001 var hann útnefndur fyrsti varaforseti ríkisstjórnarinnar með umsjón yfir mennta-, vísinda- og heilbrigðismálum.[3]
Valdataka
Þegar Saparmyrat Nyýazow forseti lést þann 21. desember árið 2006 var Berdimuhamedow falið að stýra nefnd sem hafði umsjón með útför forsetans. Á tíma Sovétríkjanna höfðu þeir sem stýrðu ríkisútförum látinna leiðtoga gjarnan tekið við völdum í kjölfarið.
Stjórnarskrá Túrkmenistan kvað á um að ef forsetinn dæi í embætti ætti forseti þingsins að taka við forsetaembætti til bráðabirgða. Samkvæmt þessu hefði Öwezgeldi Ataýew átt að verða forseti en strax eftir dauða Nyýazow hófst opinber rannsókn á meintum embættisglæpum hans sem kom í veg fyrir að hann tæki við embætti. Öryggisráð Túrkmenistan útnefndi Berdimuhamedow starfandi forseta landsins fram að kosningum.[3]
Samkvæmt 2. mgr. 60. gr. túrkmensku stjórnarskrárinnar mátti starfandi forseti ekki sjálfur gefa kost á sér í forsetakosningunum. Þessu var hins vegar breytt áður en kosningarnar voru haldnar og Berdimuhamedow var því leyft að gefa kost á sér ásamt fimm öðrum frambjóðendum sem þingið samþykkti þann 26. desember 2006.
Berdimuhamedow hlaut 89,23 % atkvæðanna í forsetakosningum Túrkmenistan þann 11. febrúar 2007 og hóf kjörtímabil sitt formlega þann 14. febrúar sama ár. Nýi forsetinn lofaði að efla einkageira landsins, varðveita velferðarþjónustuna og skapa ný störf. Hann var endurkjörinn í febrúar árið 2012 með 97,14 % atkvæða og árið 2017 með 98 % atkvæða.[6][7]
Eftir valdatöku sína lét Berdimuhamedow fljótt hefja greiðslu lífeyra á ný sem forveri hans hafði lagt niður, aflétti hömlum á utanlandsferðir Túrkmena og lét aftur lengja grunnskólanám úr níu árum í tíu. Þrátt fyrir þessar breytingar viðhélt stjórn Berdimuhamedow einræðislegu stjórnarfari að hætti Nyýazow. Margar myndir af Nyýazow á opinberum stöðum, sem voru um allt í Asgabat, voru teknar niður og þeim skipt út með myndum af Berdimuhamedow.[3]
Einræði
Stjórn Gurbanguly Berdimuhamedow er skilgreind sem einræðisstjórn af ýmsum óháðum eftirlits- og mannréttindastofnunum. Meðal annars er þá vísað til persónudýrkunar á leiðtoganum, skorts á frjálsum kosningum og til fokdýrra opinberra framkvæmda eins og byggingar „Gleðihallarinnar“ sem var vígð með mikilli fyrirhöfn á tuttugu ára sjálfstæðisafmæli Túrkmenistan. Undir lok maímánuðar árið 2015 var afhjúpuð 21 metra há gullhúðuðbronsstytta af Berdimuhamedow á hestbaki í Asgabat.[8]
Afhjúpun styttunnar þótti minna á stjórnarhætti forvera Berdimuhamedow, Saparmyrat Nyýazow, sem hafði látið reisa gullstyttu af sér sem snerist svo hún sneri alltaf að sólu. Eftir dauða Nyýazow lét Berdimuhamedow færa þá styttu frá miðbæ Asgabat til úthverfanna.[9] Berdimuhamedow lét jafnframt fjarlægja bækur eftir Nyýazow úr bókasöfnum landsins og setti þeirra í stað bækur eftir sjálfan sig um margvísleg efni líkt og veggteppalist, tesmökkun og túrkmenska heimspeki.[10][11]
Allir ríkisfjölmiðlar Túrkmenistan eru þátttakendur í persónudýrkuninni á forsetanum. Forsetinn hefur meðal annars tekið þátt í og „unnið“ kappakstur á Bugatti-bifreið,[12] auk þess sem hann hefur gjarnan tekið þátt í og „unnið“ kappreiðar á hesti.[13] Ríkisfjölmiðlar Túrkmenistan hafa jafnframt birt myndband af Berdimuhamedow þar sem hann birtist sem plötusnúður í afmælisveislu sonarsonar síns[14] og upptökur af honum að lesa ljóð sem hann hefur ort.[15] Hann hefur jafnvel birst í opinberum myndböndum að spila lag á gítar sem hann orti til heiðurs verkalýðs landsins.[14]
Árið 2016 var gerð breyting á stjórnarskrá Túrkmenistan sem nam úr gildi leyfðan hámarksaldur forsetaframbjóðenda og lengdi kjörtímabil forsetans úr fimm árum í sex.[8]
Árið 2018 var Túrkmenistan í 161. sæti af 180 ríkjum á spillingarlistaTransparency International. Mannréttindavaktin hefur sagt að í Túrkmenistan sé enn við lýði ein mesta kúgun sem þekkist í nokkru ríki í dag og að frammistaða stjórnarinnar í mannréttindamálum sé hörmuleg.[10]
Árið 2019 birti Berdimuhamedow myndband af sér þar sem hann sást keyra torfærubíl í kringum Hlið vítis (brennandi gíg í Karakum-eyðimörkinni) til að bera af sér orðróma um að hann væri dauður.[16]
Frá upphafi alþjóðlega kórónuveirufaraldursins hefur túrkmenska stjórnin fullyrt að COVID-19 hafi alls ekki náð til Túrkmenistan og að engin tilfelli hafi greinst í landinu. Veirufræðingar og aðrir sérfræðingar í læknisfræði, meðal annars hjá Alþjóðaheilbrigðismálastofnuninni, telja þessa fullyrðingu ómögulega. Túrkmenistan var, ásamt Norður-Kóreu, eitt fárra ríkja sem gaf ekki út neinar sýkingatölur til Alþjóðaheilbrigðismálastofnunarinnar eða til heimsbyggðarinnar. Jafnvel nágrannaríki Túrkmenistan, Íran, sem varð hvað verst fyrir faraldrinum af öllum Mið-Austurlöndum, fullyrti að sýkin hefði náð til Túrkmena.
Þann 10. nóvember 2020 afhjúpaði Berdimuhamedow sex metra háa, gullhúðaða styttu í nýju íbúðahverfi í Asgabat af uppáhalds hundategund sinni, mið-asíska fjárhundinum.[17][18]
Valdaskipti
Sonur Gurbanguly Berdimuhamedow, Serdar, er einnig stjórnmálamaður. Hann var útnefndur varautanríkisráðherra landsins í mars árið 2018 og hafði áður setið á þingi landsins. Í janúar 2019 var hann útnefndur varasveitarstjóri Ahal-héraðs og síðan aðstoðarforsætisráðherra árið 2021.[19] Serdar hafði lengi verið álitinn sennilegur arftaki föður síns sem þjóðhöfðingi[20] og hann bauð sig loks fram í forsetakosningum landsins árið 2022.[21] Serdar vann kosningarnar og tók við sem forseti Túrkmenistan þann 19. mars 2022.[22]