Gunnar Birgisson

Gunnar Ingi Birgisson
Alþingismaður
frá til  kjördæmi    þingflokkur
1999 2003  Reykjaneskjördæmi  Sjálfstæðisfl.
2003 2006  Suðvesturkjördæmi  Sjálfstæðisfl.
Persónulegar upplýsingar
Fæddur30. september 1947
Reykjavík
Látinn14. júní 2021 (73 ára)
Æviágrip á vef Alþingis

Gunnar Ingi Birgisson (fæddur 30. september 1947 í Reykjavík; d. 14. júní 2021) var alþingismaður, bæjarstjóri Kópavogs og bæjarstjóri Fjallabyggðar.

Nám

Gunnar tók stúdentspróf frá MR 1972 og lauk prófi í verkfræði frá 1977. Hann fór til Edinborgar og útskrifaðist með M.Sc.-próf í byggingaverkfræði frá Heriot-Watt University árið 1978. Hann lauk doktorsprófi í jarðvegsverkfræði frá University of Missouri í Bandaríkjunum 1983.

Stjórnmálaferill

Gunnar var formaður bæjarráðs Kópavogs frá 1990 til 2005 þegar hann tók við embætti bæjarstjóra. Hann var alþingismaður Sjálfstæðisflokksins í Reykjaneskjördæmi og síðar Suðvesturkjördæmi frá 1999 til 2006 þegar hann vék af þingi vegna bæjarstjórastarfa í Kópavogi árið 2005 og Sigurrós Þorgrímsdóttir tók sæti hans árið 2006. Gunnar var bæjarstjóri í Kópavogi til 2009. Gunnar var ráðinn bæjarstjóri Fjallabyggðar í janúar 2015 og gegndi því starfi til 2019. Hann gegndi einnig tímabundið starfi sveitarstjóra Skaftárhrepps árið 2020.

Heimildir

  • „Alþingi - Æviágrip: Gunnar Birgisson“. Sótt júní 2007.

Tenglar


Fyrirrennari:
Hansína Á. Björgvinsdóttir
Bæjarstjóri Kópavogs
(20052009)
Eftirmaður:
Gunnsteinn Sigurðsson
Fyrirrennari:
Sigurður Valur Ásbjarnarson
Bæjarstjóri Fjallabyggðar
(2015 – 2019)
Eftirmaður:
Elías Pétursson


  Þetta æviágrip er stubbur. Þú getur hjálpað til með því að bæta við greinina.