Einar Bollason
|
Upplýsingar
|
Fæðingardagur
|
6. nóvember 1943 (1943-11-06) (81 árs)
|
Fæðingarstaður
|
Konungsríkið Ísland
|
Leikstaða
|
Miðherji
|
Meistaraflokksferill1
|
Ár
|
Lið
|
1958-1960
1961-1967 1967–1969 1969–1972 1976–1981 1981-1982 1983–1984
|
ÍR KR Þór Akureyri KR KR FH Haukar
|
Þjálfaraferill
|
1966–1967 1967–1969 1968–1969 1973–1974 1974–1976 1977 1979-1982 1979-1980 1982-1986 1984-1987 1987-1988 1988-1989
|
KR (kk) Þór Akureyri (kk) Þór Akureyri (kvk) KR (kk) Ísland (kk) Ísland (kk) Ísland (kk) Fram (kk) Haukar (kk) Ísland (kk) ÍR (kk) Haukar (kk)
|
1 Meistaraflokksferill síðast uppfærður 18. september 2017.
2 Landsliðsleikir uppfærðir 18. september 2017.
|
Einar Gunnar Bollason, fæddur 6. nóvember 1943, er fyrrverandi landsliðsmaður og landsliðsþjálfari í körfuknattleik. Hann hefur einnig verið formaður KKÍ, setið í nefndum á vegum sambandsins, dæmt og starfað við fjölmiðla tengt körfuboltanum. Um skeið var Einar bæði landsliðsþjálfari og formaður KKÍ á sama tíma.
Körfuboltaferillinn
Einar hóf feril sinn með ÍR árið 1958 en skipti yfir í KR nokkrum árum síðar. Hann hætti að leika körfuknattleik vegna sjúkdóms snemma á áttunda áratugnum, en dró fram skóna aftur 1976 og lék með KR í þrjú ár til viðbótar. Hann lék auk þess örlítið með Haukum, þegar hann þjálfaði þá 1983-1984. Einar þjálfaði Þór Akureyri, og lék með liðinu, í lok sjöunda áratugarins.
Árið 2001 var Einar kjörinn þjálfari 20. aldarinnar af 50 manna nefnd sem einnig valdi leikmenn og dómara aldarinnar. Einar var auk þess kjörinn í lið 20. aldarinnar sem varamaður. Á þjálfaraferlinum þjálfaði Einar alla þá sem voru valdir í karlalið aldarinnar og báða dómarana. Sá eini sem Einar hafði ekki þjálfað var þjálfarinn sem lenti í öðru sæti; Friðrik Ingi Rúnarsson.
Afrek
Sem leikmaður
- Lið 20. aldarinnar sem leikmaður
- 6x Íslandsmeistari (1960, 1965-1967, 1978, 1979)
- 8× Bikarmeistari (1966, 1967, 1970-1972, 1974, 1977, 1979)
- Stigakóngur efstu deildar (1969)
Sem þjálfari
- Lið 20. aldarinnar sem þjálfari
- 2x Íslandsmeistari karla (1967, 1974)
- 2x Íslandsmeistari kvenna (1969, 1977)
- 3× Bikarmeistari karla (1977, 1985, 1986)
- Bikarmeistari kvenna(1977)
- 1. deildarmeistari karla (1983)
Geirfinnsmálið
Þann 26. janúar 1976 var Einar hnepptur í varðhald, grunaður um hlutdeild í hvarfi Geirfinns Einarssonar. Nokkur ungmenni, þeirra á meðal Erla, hálfsystir Einars, bentu á hann, Valdimar Olsen, Sigurbjörn Eiríksson og Magnús Leopoldsson. Það varð til þess að Einar sat saklaus í einangrun í 105 daga í Síðumúlafangelsinu.
Hestamennskan
Einar stofnaði, ásamt fleirum, fyrirtækið Íshesta haustið 1982. Íshestar sérhæfa sig í hestaferðum fyrir ferðamenn, jafnt innlenda sem erlenda.
Heimildir
- Leikni framar líkamsburðum eftir Skapta Hallgrímsson, útg. Körfuknattleikssamband Íslands 2001
- Riðið á vaðið eftir Heimi Karlsson, útg. Fróði 1994