Síðumúlafangelsið (eða Múlinn) var íslensktfangelsi í götunni Síðumúla í Reykjavík og nefnt eftir henni. Fangelsið hóf starfsemi árið 1973. Húsnæðið var upphaflega byggt sem bílageymsla eða bílaþvottastöð fyrir lögregluna í Reykjavík. Fangelsinu var lokað í maí 1996 og var rifið stuttu seinna. Áður en til þess kom var sett upp listasýningin Tukt í fangelsinu og var aðgangur frjáls.