Benazir Bhutto (fædd 21. júní1953, látin 27. desember2007) var pakistanskurstjórnmálamaður. Hún varð fyrsti kvenforsætisráðherra í íslömsku landi árið 1988 og var síðar kosin aftur árið 1993. Í bæði skiptin var hún sett af af þáverandi forsetum eftir ásakanir um spillingu. Hún lést eftir skotárás og sprengjutilræði í Rawalpindi þar sem hún var að ávarpa stuðningsmenn sína.
Bhutto flutti til Kúveit í sjálfskipaða útlegð frá 1999 þar til hún sneri heim til Pakistans að nýju 18. október2007.
Benazir Bhutto var elsta dóttir Zulfikar Ali Bhutto, sem var forseti og síðar forsætisráðherra Pakistans.