Þóra Arnórsdóttir

Þóra Arnórsdóttir, vor 2020

Þóra Arnórsdóttir (f. 18. febrúar 1975 í Reykjavík) er íslensk fjölmiðla- og heimildamyndagerðarkona og upplýsingafulltrúi. Hún starfað í fjölmiðlum frá árinu 1998 til 2023. [1] fyrst í útvarpi en síðan sem sjónvarpsfréttamaður um árabil. Þóra starfaði sem umsjónarmaður og síðar ritstjóri Kastljóss[2] á RÚV á árunum 2009-2017. Hún hefur verið ritstjóri Kveiks, fréttaskýringaþáttar RÚV, frá því að þátturinn hóf göngu sína árið 2017.[3]

Þann 4. apríl 2012 tilkynnti hún forsetaframboð sitt gegn sitjandi forseta, Ólafi Ragnari Grímssyni.[4] Hún hlaut um þriðjung atkvæða en Ólafur Ragnar Grímsson rúman helming.[5] Framboðið skapaði töluverða umræðu bæði innanlands og utan[6][7] [8][9] um kynjajafnrétti, en Þóra fæddi sitt þriðja barn, dóttur, í miðri kosningabaráttunni.[10]

Menntun

Þóra er stúdent frá Menntaskólanum við Hamrahlíð, er með B.A. gráðu í heimspeki frá Háskóla Íslands og Háskólanum í Genúa á Ítalíu og M.A. gráðu í alþjóðastjórnmálum og þróunarhagfræði frá Johns Hopkins University School of Advanced International Studies (SAIS) í Bologna, Ítalíu og Washington, D.C., Bandaríkjunum. Hún var valin Yale World Fellow árið 2014.[11][12] „Verkefni Yale World Fellows er að rækta og valdefla net alþjóðavæddra leiðtoga sem eru staðráðnir í að gera heiminn að betri stað,“ segir um verkefnið á heimasíðu þess.[13]

Starfsferill

Þóra hefur meðal annars gert heimildarþáttaröðina Hrunið (2009)[14], myndina Útlagar (2009), um Dalai Lama og tíbetskt samfélag á Indlandi, Inndjúpið (2013), þáttaröð um síðustu bændurna við Ísafjarðardjúp og Brautryðjendur (2014), þar sem rætt er við íslenskar konur sem ruddu brautina á ýmsum sviðum mannlífsins. Hún stýrði einnig spurningaþættinum Útsvari ásamt Sigmari Guðmundssyni í 10 ár, 2007-2017. Allir þættirnir hafa verið tilnefndir til Eddu-verðlauna.

Þóra var tilnefnd sem sjónvarpsmaður ársins árin 2007, 2010,[15] 2011 og 2012 og fékk áhorfendaverðlaun ársins 2012.[16] Hún var einnig tilnefnd til Blaðamannaverðlaunanna 2009 og 2010.[17]

Fréttaskýringaþátturinn Kveikur hefur einnig hlotið þrenn Edduverðlaun, í flokki frétta-og viðtalsþátta og sem sjónvarpsefni ársins.[18]

Árið 2023 hætti Þóra hjá Rúv og hóf störf sem forstöðumaður samskipta og upplýsingamiðlunar hjá Landsvirkjun.[19]


Einkalíf

Sambýlismaður Þóru er Svavar Halldórsson (f. í Vestmannaeyjum, 10. apríl 1970). Þau eiga þrjú börn, Halldór Narfa, Nínu Sólveigu og Ásdísi Huldu, og þrjár dætur úr fyrra sambandi hans, Ernu Maríu, Guðbjöru Lilju og Rebekku Ósk.[20] Faðir Þóru var Arnór Hannibalsson (1934-2012), heimspekiprófessor.[21] Móðir hennar var Nína Sæunn Sveinsdóttir (1935-2018), viðskiptafræðingur og framhaldsskólakennari.[22]

Tenglar

Tilvísanir

  1. Háskólabókasafn, Landsbókasafn Íslands-. „Tímarit.is“. timarit.is. Sótt 7 júní 2020.
  2. „Þóra ráðin ritstjóri Kastljóssins - Viðskiptablaðið“. www.vb.is (bandarísk enska). Sótt 7 júní 2020.
  3. „Þóra ritstjóri nýs fréttaskýringaþáttar“. RÚV (enska). 31 maí 2017. Sótt 7 júní 2020.
  4. „Þóra býður sig fram til forseta“. RÚV (enska). 4 apríl 2012. Sótt 8 júní 2020.
  5. „Auðvitað var þetta ske mmtilegt“. www.mbl.is. Sótt 7 júní 2020.
  6. „She's young, blonde, polite and doesn't do party politics: just the guy for president“. the Guardian (enska). 23 júní 2012. Sótt 7 júní 2020.
  7. „New mum takes on president in poll“. NewsComAu (enska). 30 júní 2012. Sótt 7 júní 2020.
  8. „La prossima presidente dell'Islanda?“. Il Post (ítalska). 28 júní 2012. Sótt 7 júní 2020.
  9. „Islande : vers l'Etat des femmes ?“. TV5MONDE (franska). 24. desember 2014. Sótt 7 júní 2020.
  10. „Þóra eignast dóttur“. RÚV (enska). 18 maí 2012. Sótt 8 júní 2020.
  11. „Class of 2014 | Yale Greenberg World Fellows“. worldfellows.yale.edu. Sótt 8 júní 2020.
  12. „„Troðfull kista af tækifærum". www.mbl.is. Sótt 8 júní 2020.
  13. „Class of 2016 | Yale Greenberg World Fellows“. worldfellows.yale.edu. Sótt 8 júní 2020.
  14. „Sjónvarp“. www.ruv.is. Sótt 8 júní 2020.
  15. „Þóra sjónvarpsmaður ársins“. RÚV (enska). 28 febrúar 2010. Sótt 8 júní 2020.
  16. „Eddan.is - Vefsíða Edduverðlaunanna“ (bandarísk enska). Sótt 8 júní 2020.
  17. Íslands, Blaðamannafélag. „Blaðamannaverðlaun/Mynd ársins“. Blaðamannafélag Íslands. Afrit af upprunalegu geymt þann 15 ágúst 2020. Sótt 8 júní 2020.
  18. „Eddan 2019 - Eddan.is“ (bandarísk enska). Afrit af upprunalegu geymt þann 8 júní 2020. Sótt 8 júní 2020.
  19. Þóra Arnórsdóttir til Landsvirkjunar Vísir, sótt 17/× 2013
  20. „From Iceland — The Television Personality“. The Reykjavik Grapevine (bandarísk enska). 19 júní 2012. Sótt 8 júní 2020.
  21. „Andlát: Arnór K. Hannibalsson“. www.mbl.is. Sótt 8 júní 2020.
  22. „Morgunblaðið - Nína Sæunn Sveinsdóttir“. www.mbl.is. Sótt 8 júní 2020.[óvirkur tengill]

[1]

  1. „Þóra Arnórsdóttir til Landsvirkjunar“. www.landsvirkjun.is. Sótt 11 janúar 2025.