Willow byrjaði tónlistarferill sinn haustið 2010 þegar hún gaf út smáskífurnar „Whip My Hair“ árið 2010 og „21st Century Girl“ árið 2011. Hún varð yngsti tónlistarmaðurinn hjá útgáfufyrirtækinu Roc Nation árið 2010. „Whip My Hair“ komst í 11. sæti á Billboard Hot 100. Myndbandið við það lag var tilnefnt til BET verðlaunanna[1] sem myndband ársins árið 2011. Hún gaf út sína fyrstu plötu, Ardipithecus 11. desember 2015.
Barnæska
Willow Smith fæddist 31. október 2000 í Los Angeles, Kaliforníu.[2] Hún er dóttir leik- og tónlistarkonunnar Jada Pinkett Smith og leikara og tónlistarmanninum Will Smith. Hún á tvö eldri systkini: bróðir hennar Jaden Smith, leikari og tónlistarmaður, og hálfbróðir hennar Willard Carroll „Trey“ Smith III, leikari og plötusnúður.
2007–2013: Willow kemst í sviðsljósið á leiklistar og tónlistarsviði
Willow byrjaði leikferil sinn í myndinni I Am Legend þar sem hún lék ásamt föður sínum.[4] Næsta myndin sem hún lék í, Kit Kittredge: An American Girl,[5] kom út 2. júlí 2008. Árið 2008 talsetti hún fyrir unga Gloríu í Madagascar: Escape 2 Africa, þar sem móðir hennar Jada talaði fyrir eldri Gloríu.
Í júní 2009 tilkynnti Jada Pinkett Smith, móðir Willow í viðtali í sjónvarpsþættinum Lopez Tonight, að Willow myndi gefa út sína fyrstu plötu. Willow gaf síðan út sína fyrstu smáskífu „Whip My Hair“ sem varð mjög vinsæl í Bandaríkjunum. Skömmu seinna tilkynnti Willow sína næstu smáskífu „21st Century Girl”. Daginn eftir að hafa frumflutt lagið í sjónvarpsþættinum The Oprah Winfrey Show , gaf hún það út 3. febrúar 2011. Myndbandið kom út 9. mars 2011. 20. janúar 2011 tilkynnti Will Smith að hann ætlaði sér að endurgera Broadway söngleikinn Annie í kvikmyndarformi þar sem Willow myndi leika titilhlutverkið. [6]Þrátt fyrir það var Willow talin of gömul fyrir hlutverkið og í febrúar 2013 fékk Quvenzhané Wallis hlutverkið.[7]
6. október 2011 kom lagið „Fireball“, út í samstarfi með rapparanum Nicki Minaj. Fireball stóð ekki undir væntingum og komst ekki í neina vinsældarlista í Bandaríkjunum.
Framleiðandi Willow tilkynnti að vinnslu á fyrstu plötunni hennar væri nánast lokið. Hann sagði einnig að platan væri í svipuðum stíl og „Whip My Hair”. Titill plötunnar var seinna sagður vera Knees and Elbows.[8] Hún átti að koma út í kringum apríl 2012 en seinna var tilkynnt að útgáfu væri frestað.
1. maí 2012 gaf hún út tónlistarmyndband við lagið „Do it Like Me (Rockstar)“.[9] 2. júlí 2012 frumsýndi Smith tónlistarmyndbandið við lagið „I Am Me“ á BET verðlaununum. 17. júlí sama ár gaf hún út sína fjórðu smáskífu „I Am Me“ á iTunes og Amazon.
Knees and Elbows hefur enn ekki verið gefin út og hefur líklegast orðið að yfirgefnu verkefni. Sumarið 2013 byrjuðu Willow og DJ Fabrega samstarf sem kallaðist „Melodic Chaotic“. „The Intro“ var það fyrsta sem þau gáfu út undir því nafni. „Summer Fling“ var svo annað og kom út 6. júlí 2013. Myndbandinu var leikstýrt af Willow og Mike Vargas sem hafði áður leikstýrt myndbandinu hennar fyrir „I Am Me“. Lagið Summer Fling hefur verið gagnrýnt fyrir óviðeigandi notkun á orðinu „fling.“ og eftirlíkingu hennar á breskum hreimi.[10][11][12]16. september 2013 flutti Willow lagið „Summer Fling“ í sjónvarpsþættinum The Queen Latifah Show. Á meðan flutningi stóð sagði hún: „Til þess að útskýra nánar, þýðir orðið fling eitthvað sem endist ekki lengi ... og þetta lag er tileinkað öllum börnum í heiminum sem finnst sumarið aldrei endast nógu lengi. “
2014–2018: 3, Ardipithecus og The 1st
24. október 2014 var tilkynnt af Willow og FADER að hún myndi gefa út fyrstu stuttskífu sína „3“ 31. október 2014. Sama dag hélt hún tónleika í New York borg í FADER tjaldinu þar sem hún flutti lög af stuttskífunni, þ.á.m „8“, „9“ og lagið „5“ sem hún flutti með bróður sínum. Hún flutti einnig lagið „Summer Fling“, og nýja útgáfu af vinsæla laginu „Whip My Hair“.
Willow gaf út smáskífuna „ F Q-C #7“ 7. maí 2015.[13] Tónlistarmyndband kom út samdægurs á Vevo. [14] Eftir útgáfuna á tónlistarmyndbandi við lagið „Why Don't You Cry“ [15]gaf Willow út fyrstu plötuna sína Ardipithecus þann 11. desember 2015.[16] Til útskýringar um titil plötunnar sagði Willow: „Ardipithecus Ramidus (sic) Sahelanthropus tchadensis er vísindalegt heiti yfir fyrstu steingervingana af mannætt sem fundnir voru á jörðinni. Ég vildi nefna tónlistarsamsetningu mína eftir því vegna þess að á meðan ég var að semja þessi lög var ég í svo miklu breytingarástandi. Ég gróf djúpt í jarðvegi hjartans míns og fann búta og hluta af mínu forna sjálfi sem segir sögur sem enduðu á því að verða textarnir við þessi lög.“ [17]
Á 17 ára afmælisdeginum sínum, 31. október 2017 gaf hún út sína aðra plötu The 1st sem hefur fengið mikil hrós fyrir tónlistarþróun þess, þá sérstaklega getu Willow að skapa tónlist sem fetar í spor forvera hennar í R&B af 10. áratugnum, þrátt fyrir að hafa ekki verið á lífi á þeim tíma.[18] Hún fór í tónlistarferðalag eftir útgáfu plötunnar ásamt Jhene Aiko, St. Beauty, Kodie Shane og Kitty Cash út árið 2017.[19]
Ásamt móður sinni og ömmu, Adrienne Banfield-Norris, stjórnar Willow vefþættinum Red Table Talk sem hlaut henni tilnefningu til Daytime Emmy verðlaunanna.[20][21]
2019 – nútíð: Willow og The Anxiety
24. júní 2019 tilkynnti Willow Smith sína þriðju plötu, Willow. Platan kom út 19. júlí 2019 og var framleitt í sameiningu af Willow sjálfri og Tyler Cole.[22] Tvíeykið gaf út plötu saman sem ber titilinn The Anxiety árið 2020.
Einkalíf
Í júní 2019 kom Willow út úr skápnum sem tvíkynhneigð og sagði, „Ég elska menn og konur jafnt.“ Hún minntist einnig á stuðning sinn við fjölbreytileg sambönd og löngun hennar í að vera í slíku sambandi. [23]