Time and Time Again er önnur plata hljómsveitarinnar Lada Sport, og var útgefin 9. júlí árið 2007 hjá keflvísku útgáfunni Geimsteinn. Platan var tekin upp að mestu leyti í stúdíó Geimsteini vorið 2007, upptökustjóri hennar var Axel Árnason. Fyrsta lag í útvarpsspilun var lagið „Love Donors“ sumarið 2006, annað lag í spilun kom út rétt áður en platan sjálf kom út, og hét það „The World Is a Place for Kids Going Far“, náði það í 1. sæti á útvarpsstöðinni Radíó Reykjavík.
Lagalisti
Lag |
Nafn |
Lengd
|
01 |
Love Donors |
03:35
|
02 |
The World Is a Place for Kids Going Far |
03:21
|
03 |
Last Dance Before an Execution |
03:42
|
04 |
Trampoline |
04:32
|
05 |
Once Caring Souls |
04:12
|
06 |
Gene Pacman |
03:09
|
07 |
Our Lives in Lighthouses |
03:07
|
08 |
Holocaust |
04:08
|
09 |
Tango in the Valley of Death |
03:42
|
10 |
Where's Our Sunday |
03:26
|
11 |
Leví, It's Time to Wake Up |
04:17
|
Meðspilarar og hönnun á umslagi
Á plötunni Time and Time Again spila með þeim í Lada Sport;
- Gísli Steinn Péturson á gítar og gítarforritun
- Katrína Mogensen (Mammút), Zahran og Emojoung á bakröddum
- Þórður Hermannsson á selló
- Margrét Soffía Einarsdóttir á fiðlu
- Ívar Schram rappar
- Eiríkur Rafn Stefánsson á trompet
Umslagið er hannað af Haraldi Leví Gunnarssyni, trommuleikara Lada Sport en ljósmyndin framan á tekin af Hilmi Berg Ragnarssyni. Diskurinn er gefinn út í Super Jewel Case.