Sylvia Plath (27. október1932 – 11. febrúar1963) var bandarískt ljóðskáld, rithöfundur og smásagnahöfundur. Þrátt fyrir að vera frægust fyrir beitt ljóð sín hefur sjálfsævisöguleg skáldsaga hennar Glerhjálmurinn (e. Bell Jar) einnig náð mikilli hylli.
Hún giftist enska skáldinu Ted Hughes sem að endingu fór frá henni og tveimur börnum hennar fyrir aðra konu. Sylvia Plath fyrirfór sér rétt rúmlega þrítug árið 1963 með því að stinga höfði sínu inn í gasofn á meðan tvö börn hennar sváfu í sömu íbúð.