Bessastaðahreppur varð til árið 1878, ásamt Garðahreppi, þegar Álftaneshreppi var skipt í tvennt. Hinn 17. júní2004 var nafni hreppsins breytt í sveitarfélagið Álftanes.
Samhliða þjóðaratkvæðagreiðsla um tillögur stjórnlagaráðs þann 20. október2012, fór fram íbúakosning í Garðabæ og sveitarfélaginu Álftanes og var sameining þeirra í eitt sveitarfélag samþykkt. Hið nýja sveitarfélag heitir Garðabær en um það hafði verið samið fyrir kosningarnar og miðað við tölur Hagstofu frá 1. janúar 2012 munu íbúar sameinaðs sveitarfélags verða um 14.000 talsins. Sameiningin tók gildi áramótin 2012/2013.[1][2]